Frjáls verslun - 01.07.2002, Qupperneq 70
Hjálmur Nordal, Knstjan Þ. Davíðsson og Pétur Einarsson, við-
skiptastjórar ífiskiðnaðarteymi Islandsbanka. Mynd: Geir Ólajsson
sjavarutveg fra 1905 þegar Fiskveiðisjóður var stofnaður og svo í
gegnum Utvegsbankann síðar á síðustu öld. Núna er það fiskiðn-
aðarteymið sem heldur uppi merkjum bankans og vinnur að því
að byggja upp þjónustu og aðstoð við fyrirtæki í fiskiðnaði hér á
landi og víðs vegar um heim. Fiskiðnaðarteymið hefur einbeitt
sér að sex svæðum og byggist það á mati lánshæfis og lagalegs og
fjárhagslegs umhverfis. Þetta er að finna í Noregi, Austur-Kanada,
Alaska, Suður-Afríku, Chile og á Nýja-Sjálandi. Þessi lönd eiga það
sameiginlegt að hafa aðgang að stærstu fiskistofnum sem um
getur. „Aðstæður í þessum löndum eru ekki ólíkar aðstæðum
okkar. I þessum löndum er þróaður fiskiðnaður sem býr við efna-
hagslegt og lagalegt umhverfi sem ekki er óáþekkt því sem við
búum við. Fiskistofnanirnir eru áþekkir okkar stofnum. Þetta eru
kaldsjávarfiskveiðar, eldi og vinnsla og uppbyggingin er svipuð og
hér; uppsjávarfiskur, botnfiskur, fiskeldi, rækja. Þarna er ekkert
framandi á ferðinni þar sem við þurfum að byggja upp þekk-
inguna frá grunni. I öllum tilfellum er um einhvers konar fiskveiði-
stjórnunarkerfi að ræða þannig að áhættan er ásættanleg. Við
byggjum á þeirri reynslu sem við höfum og vinnum markvisst að
því að byggja upp tengsl við fyrirtæki og stofnanir á þessum
svæðum. Allir höfum við líka starfað alþjóðlega í sjávarútvegi og
það kemur okkur til góða,“ segir Hjálmur.
Sambankalán í stórum verkefnum Fiskiðnaðarteymi íslands-
banka viðhefur skipuleg vinnubrögð þegar farið er inn á nýjan
markað. Pétur segir að þeir kynni sér vel lagalegt umhverfi,
Útrás íslandsbanka í
alþjóðlegum fiskiðnaði
Alþjóðlegur fiskiðnaður hefur breyst gríðarlega síðustu 25
árin, ekki síst við almenna útfærslu efnahagslögsögu í 200
mílur og upptöku kvótakerfa í fiskveiðistjórnun, sem al-
mennt hefur verið komið á í heiminum. Akveðin samþjöppun og
hagræðing hefur átt sér stað og nú eru fiskiðnaðarfyrirtækin
miklu stærri og sterkari einingar en áður var. Stóra breytingin er
einnig tvímælalaust fiskeldið og þar er tegundunum sífellt að
fjölga, núna er t.d. verið að rannsaka möguleika á eldi steinbíts
og ýsu, svo nærtæk dæmi séu nefnd. „Laxeldi hefur þróast frá
því að þykja ævintýramennska í kringum 1960 upp í það að vera
stór iðnaður. Fiskeldið er að þróast hröðum skrefum í sömu átt
og annar fiskiðnaður, einingum fækkar og þær stækka. Vaxtar-
möguleikar fiskiðnaðarins eru fyrst og fremst í eldi. Flestallir
fiskistofnar í heiminum eru fullnýttir. Það er ekki spurning hvort
heldur hvenær verður framleiddur meiri eldisfiskur en fæst með
veiði úr sjó,“ segir Kristján Þ. Davíðsson, viðskiptastjóri í í fisk-
iðnaðarteymi Islandsbanka.
Starfar í sex löndum Þeir eru þrír mættir til að spjalla um útrás
íslandsbanka í alþjóðlegum fiskiðnaði; viðskiptastjórarnir
Hjálmur Nordal, Kristján og Pétur Einarsson. Þeir hafa unnið að
þessari útrás í fjögur ár eða frá því FBA, sem síðar sameinaðist
Islandsbanka, var stofnaður. Islandsbanki er enginn nýgræðingur
á þessu sviði. Bankinn hefúr verið leiðandi í þjónustu við íslenskan
kvótakerfi og lög og reglur um eignarrétt áður en farið er á fundi
með opinberum aðilum, lögfræðingum, endurskoðendum, full-
trúum flármálastofnana og fyrirtækja í viðkomandi landi. Ekki
þykir nauðsynlegt að stofna útibú erlendis því að fjarlægðir
skipta sífellt minna máli á tímum góðra samgangna og tölvusam-
skipta. „íslandsbanki er stórt fyrirtæki á íslenskan mælikvarða
og reyndar einn af stærstu bönkum í þessari grein í heiminum.
Fiskiðnaðurinn sjálfur er sífellt að verða alþjóðlegri og fyrirtækin
þurfa mjög sérhæfða þjónustu og aðstoð, t.d. við kaup og sölu á
fyrirtækjum, gjaldeyrisáhættustýringu og alþjóðlega fjár-
mögnun á stórum og flóknum verkefiium,“ segir hann og nefnir
sem dæmi um þjónustu bankans fimm milljarða sambankalán
með Bank of Nova Scotia til Kanada, sem kynnt var nýlega, og
kaup SH á fiskréttaverksmiðju í Bretlandi.
- Hvernig líst ykkur á áform Kauphallar Islands um að koma
hugsanlega á fót sérstökum alþjóðlegum markaði með fyrirtaeld
í fiskiðnaði?
„Mjög vel. Við erum vel í stakk búnir að þjóna fyrirtækjum til
þess að skrá sig hér á hlutabréfamarkaði og versla með við-
komandi bréf. Við erum jafnvel í mjög góðri stöðu til þess að
koma með slík fyrirtæki hingað á markaðinn og vera upp-
spretta að slíkum skráningum. Þetta yrði því mjög góð þróun,“
svarar Pétur Einarsson. B!1