Frjáls verslun - 01.07.2002, Síða 76
SflGflN Á BAK VIÐ HERFERÐINA
„Þetta er jú bara eins og
frumskógur þarna úti“
A meðan heimsmeistaramótið ífótbolta stóðyfir, vakti athygli nýtt„lið“í bolt-
og dugnaði. Að vísu fara engar sögur afverðlaunum þeim til handa í þessari
ágætu kepþni en víst er að liðið skemmti sér vel og ekki síður áhorfendur.
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur
Stjórnendur fyrirtækisins höfðu ákveð-
ið að fara á þessu ári í auglýsingaher-
ferð til kynningar á þjónustustöðvum
okkar, sem fólk þekkir sem Uppgripsversl-
anir Olís, og höfðu menn um nokkra hríð
velt þvi fyrir sér hvernig best væri að haga
slíkri herferð. Þegar ákveðið var að Olís
yrði eitt þeirra fyrirtækja sem myndi kosta
HM í knattspyrnu á Sýn og Stöð 2 var skip-
aður svokallaður HM-hópur innan fyrir-
tækisins en auk mín voru í honum Thomas
Möller, þáverandi markaðssljóri, Jóhannes
Davíðsson, markaðssviði þjónustustöðva,
Sigurður K Pálsson, markaðssviði stórnot-
enda, og Gunnar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Olís á Vesturlandi og kunnur
fótboltafrömuður á Skaganum," segir Har-
aldur Jónsson, markaðssviði þjónustu-
stöðva Olís.
Levniviðskíptavinir Olís „Við hittumst
nokkrum sinnum og köstuðum á milli
okkar hugmyndum að því hvernig við
gætum nýtt okkur þetta,“ segir Haraldur.
„Við vissum sem er að kannski er ekki ýkja
mikill munur á milli okkar og samkeppnis-
aðilanna. Við erum að selja sama gos,
sama skyndibita, sama eldsneyti og svo
framvegis. Við veltum því fyrir okkur hvar
okkar sérstæða lægi og áttuðum okkur
auðvitað fljótt á því að hún er starfsfólkið
okkar sem er alveg frábært og við
ákváðum einfaldlega að sýna það. Við
gerum mánaðarlega þjónustukannanir þar
sem svokallaðir leyniviðskiptavinir kanna
þjónustu og viðmót starfsfólks. Niður-
stöður þeirra kannana sýna að við getum
stært okkur af því að veita góða þjónustu
og því varð það úr að nota okkur það sem
við höfum - okkar forskot á samkeppnina."
Hjörtun Slógu í takt Fljótlega komu upp
hugmyndir sem leiddu til þess að auglýs-
ingaherferðin varð til og haft var samband
við auglýsingastofuna Gott fólk sem er aug-
lýsingastofa Olís. „Þaðan komu hugmyndir
sem voru mjög í takt við okkar eigin og
farið var í að búa til texta við auglýsing-
arnar. Þar sem við vorum ákveðnir í að nota
okkur starfsfólkið, að sýna fólkið sem er
framverðir okkar í fyrirtækinu og almenn-
ingur þekkir, vildum við að okkar fólk léki í
auglýsingunum en ekki keyptir leikararar,“
segir Haraldur.
„Það vakti ákveðnar efasemdir hjá aug-
lýsingastofúnni því ýmis fyrirtæki hafa reynt
að nota starfsfólk sitt í auglýsingum með
misjöfnum árangri, en við höfðum trú á
þessu og vildum reyna. Saga film tók að sér
kvikmyndagerðina og við leituðum til starfs-
fólks þjónustustöðvanna með þátttöku.
Undirtektir voru góðar og við fengum fjöld-
ann allan af góðu fólki.“
Fútbolti á Öllum hæðum Fyrsta auglýsingin
var tekin á Laugardalsvelli og sýndi „Olís-
liðið“ einbeitt á svip og til í slaginn. í fram-
haldinu voru teknar leiknar auglýsingar
sem lukkuðust gríðarvel og hafa vakið
mikla athygli. Þær sýndu starfsfólk stöðv-
anna „peppa“ sig upp fyrir daginn og undir-
búa sig til þess hlutverks að þjóna viðskipta-
vinum á besta hugsanlegan máta.
„Við skreyttum stöðvarnar með fánum
og hurðamerkingum og ýtum síðan úr vör
með mikilli HM-hátíð á fyrsta leikdegi. Við
sýndum opnunarleikinn á öllum stöðvum
og starfsfólk stöðvanna var klætt í íþrótta-
búninga að eigin vali og tók jafnvel léttar
knattæfingar og dæmi eru um það að við-
skiptavinir og starfsfólk hafi tekið stuttan
leik. Fólkið á skrifstofunni var að sjálfsögðu
ekki undanskilið og þar var mikið flör og
fótbolti spilaður á öllum hæðum. Forstjór-
inn okkar, Einar Benediktson, lét að sjálf-
sögðu ekki sitt eftir liggja og mætti í