Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Page 79

Frjáls verslun - 01.07.2002, Page 79
bakiöt VÍNUMFJÖLLUN SSGMARSB. ástæðan er sennilega sú að mörg góð Shiraz vín koma frá Astralíu. Shiraz vínin eru kröftug og bragðmikil. Gott vín er Lindeman Bin 50 Shiraz á 1.350 krónur, þetta er öflugt vín með góðri eik. Annar ljómandi góður Astrali er Clancy’s á 1.700 krónur, þetta er kröftugt vín - algjör bolti. Af því er kryddilmur sem minnir á negul, pipar og jafnvel vanillu, bragðið minnir á berjasultu, tóbak og svartan pipar. Þá eru það frönsku vínin úr Rhonardalnum en þau eru frábær með lambakjöti, t.d. M. Chapoutier Hermitage la Siz- eranne á 3.360 krónur. Ekki má gleyma stóru vín- unum frá Bordeaux, þar vil ég sérstaklega mæla með Saint-Emilion vinunum, t.d. Clos des Jacobins á 3.850 krónur. Vín pressað úr Shiraz þrúgunm a flestum lambakjötsréttum. einstaklega vel við með má t.d. fá í Heilsuhúsinu. Með baununum er haft fínt saxað grænmeti og örlítið beikon. Þá er tilvalið að hafa kartöflumús, sem bragðbætt er með góðri ólífuolíu, með lambakjöti. Ekki er nein sérstök þörf á að hafa með því efnismikla sósu, soðið af kjötinu, sem hefur verið bragðbætt með rauðvíni, dugar vel og svo gott kryddsmjör. Lambabógur er mjög góður en bógurinn hentar einkar vel í pottrétti. Frakkar skera bóginn niður í bita, steikja kjötið og sjóða það í rauðvíni og hvítvíni. Kjötið er kryddað með salti, pipar, timian og rósmarin. Undir lokin er svo fersku grænmeti bætt í pottinn og það soðið með undir lokinu. Með þessum rétti er best að hafa nýjar kartöflur eða kartöflumús. Ekki sakar að hafa gott brauð með báðum þessum einföldu frönsku réttum. Vín 09 lambakjöt Meðal góðra víntegunda sem eiga vel við lambakjöt er Beujolais. Þetta vín er pressað úr Gamy-þrúg- unni. Þetta er vín með ljúfu berja- og kryddbragði, kirsuberja- ogjarðarberjabragði, stundum vottar fyrir kanilbragði. Beujo- lais vínið passar sérlega vel með lambakjöti sem bragðbætt er með hvítlauk. Góður Beujolais er Georges Duboeuf Saint Amor á 1.280 krónur. Annað ljúft vín með lambinu er vín úr Zinfandel þrúgunni, af þessu víni er bragð af súkkulaði, jafn- vel jarðarberjum og suðrænu kryddi. Eg mæli sérstaklega með Beringer North Coast Zinfandel á 1.630 krónur. Margar ástralskar rauðvínstegundir eiga vel við lambakjötið. Ekki veit ég hvort það er vegna þess að Ástralir framleiða mikið af lambakjöti og snæða ekki síður mikið af því. Líklegasta HailSt og rauðvín Lambakjöt og gott rauðvín passar saman eins og hönd í hanska. Ekki sakar að snæða lambakjötið og drekka rauðvínið í sumarbústaðnum. Gott er að fara í göngu- ferð áður og njóta haustlitanna. Qfl Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum rauðvínum með lambakjöti: Georges Duboeuf Saint-Amor á 1.280 krónur Beringer North Coast Zinfandel á 1.630 krónur Lindeman's Bin 50 Shiraz á 1.350 krónur Clancy's á 1.700 krónur Hermitage la Sizeranne á 3.360 krónur Clos des Jacobins á 3.850 krónur 79

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.