Morgunn - 01.06.1969, Side 34
28
MORGUNN
um, þekkingin á því, hvort við erum ekkert annað en þessi
vesali jarðarlíkami, sem er dæmdur til hrörnunar, dauða og
eyðingar, eða hvort við erum ódauðleg sál, sem aðeins dvel-
ur í þeim líkama um stund, en á fyrir höndum æðra líf,
þroska og framför. Og það er þekking á því, hvort látnir
ástvinir eru okkur gjörsamlega misstir og ekki framar til,
eða hvort þeir eru okkur iðulega nálægir, haldi áfram að
muna okkur og elska og geti komizt í samband við okkur,
þegar hin réttu skilyrði til þess eru fyrir hendi.
Við viljum fá að vita það alveg skýlaust og ákveðið, hvort
lán okkar og lífsgæfa er aðeins fólgin í hinum hverfulu
ytri gæðum, sem efnisvísindin eru að færa okkur til þess að
rífast, keppast og berjast um, þangað til við veltum út af til
fulls og hættum að vera til, eða hitt, hvort voi’t lán býr í oss
sjálfum, hvort við séum eilífrar ættar, og takmark okkar
fylling lífsins og þroski, en ekki hrörnun dauðans og upp-
lausn. Þetta viljum við fá að vita, og það er eðlilegt að við
viljum fá að vita það.
En hvernig eigum við að fá að vita það?
Annars vegar með því að athuga sjálfa reynsluna bæði
forna og nýja, bæði okkar eigin reynslu og annarra. Hins
vegar með vísindalegri rannsókn á sálarlifi og sálarhæfileik-
um mannsins hér í þessu lífi og vísindalegum tilraunum til
þess að leiða í Ijós sannleikann um framhald lífs eftir dauð-
ann og sambandið við þá, sem farnir eru á undan okkur.
Um fyrra atriðið, athugun reynslunnar og þá fyrst og
fremst okkar eigin reynslu, er það að segja, að þá athugun
getum við sjálf framkvæmt og kynnt okkur. Og fyrir þá at-
hugun og eigin reynslu hafa þúsundir manna sannfærzt um
líf eftir dauðann og samband við látna ástvini. Og þetta
hefur orðið þeim óendanleg huggun og styrkur. Um síðara
atriðið, hina algildu sönnun fyrir framhaldslifinu og sam-
bandinu við hina látnu, sönnun, sem allir verða að beygja
sig fyrir og taka gilda, hvort sem þeim líkar betur eða verr,
gegnir nokkuð öðru máli. Þeirra sannana geta vísindin ein
aflað með nákvæmum rannsóknum og tilraunum, sem eru