Morgunn - 01.06.1969, Side 58
52
MORGUNN
en þessum orðum sagði hún að hefði fylgt svo mikil vissa,
að hún hefði trúað því fyllilega. Þá sagði ég henni, hvar hún
hefði setið í stofunni og grátið. Hún rak upp stór augu, vildi
ekki viðurkenna það. En þegar ég hélt fast við það, að þarna
hefði hún setið og að hún hefði grátið, þá játaði hún, að
þetta væri alveg rétt. Ég sagði þá, hvernig hún hefði setið;
það var líka rétt. Telpan varð náttúrlega alveg forviða;
stofuhurðin hafði verið læst, eins og ég hef áður sagt, en
enginn hafði gengið um á meðan.
Nokkrum mínútum síðar kom maðurinn minn inn með
þær fréttir, að báturinn væri kominn, og ekkert hefði verið
að þar. Það hefur svarað þeim tíma, að báturinn hefur ein-
mitt verið fyrir innan Leiruna, þegar ég sá hann.
Ég hef síðar sagt þessa sögu tveimur læknum, sitt í hvort
sinn, og spurt þá að, hvort þeir gætu nokkuð sett það í sam-
band við óráð sjúkiinga. Ég sagði þeim jafnframt, í hvaða
veiki ég hefði legið, og eins hve mikinn hita ég hefði haft.
Hvorugur þessa lækna er spíritisti, en báðir töldu, að hér
mundi hafa verið um dularfull efni að ræða, sögðust ekki
þekkja neitt, sem benti á, að þetta hefði verið i óráði.
Þá koma fjórar sögur, sem mér finnst, að framar öðru
megi telja sem fyrirboða.
(Vegna takmarkaðs rúms í þessu hefti Morguns er einni
og lengstu frásögninni sleppt hér. — S. V.).
FYRIRBOÐAR.
Jarðarförin.
Það var árið 1909. Ég var á landsímastöðinni í Keflavík
þá. Oft hafði ég lítið að gera, og kallaði þá oft á vinstúlku
mína, sem bjó í húsinu, inn til mín.
Þá var það einu sinni síðari hluta dags um haustið, að ég
hafði náð í þessa vinstúlku mína og móður hennar inn til
mín. Það lá vel á okkur; ég man, að við hlógum dátt að því,
sem við vorum að tala um. Allt í einu hætti ég að tala, við
j