Morgunn


Morgunn - 01.06.1969, Page 58

Morgunn - 01.06.1969, Page 58
52 MORGUNN en þessum orðum sagði hún að hefði fylgt svo mikil vissa, að hún hefði trúað því fyllilega. Þá sagði ég henni, hvar hún hefði setið í stofunni og grátið. Hún rak upp stór augu, vildi ekki viðurkenna það. En þegar ég hélt fast við það, að þarna hefði hún setið og að hún hefði grátið, þá játaði hún, að þetta væri alveg rétt. Ég sagði þá, hvernig hún hefði setið; það var líka rétt. Telpan varð náttúrlega alveg forviða; stofuhurðin hafði verið læst, eins og ég hef áður sagt, en enginn hafði gengið um á meðan. Nokkrum mínútum síðar kom maðurinn minn inn með þær fréttir, að báturinn væri kominn, og ekkert hefði verið að þar. Það hefur svarað þeim tíma, að báturinn hefur ein- mitt verið fyrir innan Leiruna, þegar ég sá hann. Ég hef síðar sagt þessa sögu tveimur læknum, sitt í hvort sinn, og spurt þá að, hvort þeir gætu nokkuð sett það í sam- band við óráð sjúkiinga. Ég sagði þeim jafnframt, í hvaða veiki ég hefði legið, og eins hve mikinn hita ég hefði haft. Hvorugur þessa lækna er spíritisti, en báðir töldu, að hér mundi hafa verið um dularfull efni að ræða, sögðust ekki þekkja neitt, sem benti á, að þetta hefði verið i óráði. Þá koma fjórar sögur, sem mér finnst, að framar öðru megi telja sem fyrirboða. (Vegna takmarkaðs rúms í þessu hefti Morguns er einni og lengstu frásögninni sleppt hér. — S. V.). FYRIRBOÐAR. Jarðarförin. Það var árið 1909. Ég var á landsímastöðinni í Keflavík þá. Oft hafði ég lítið að gera, og kallaði þá oft á vinstúlku mína, sem bjó í húsinu, inn til mín. Þá var það einu sinni síðari hluta dags um haustið, að ég hafði náð í þessa vinstúlku mína og móður hennar inn til mín. Það lá vel á okkur; ég man, að við hlógum dátt að því, sem við vorum að tala um. Allt í einu hætti ég að tala, við j
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.