Morgunn


Morgunn - 01.06.1969, Page 61

Morgunn - 01.06.1969, Page 61
MORGUNN 55 að á það, sem verið var að segja, meðan það var að koma, enda hafði ég þá ekki jafn-glöggt auga og nú fyrir leitinni eftir sönnunum; þess vegna lét ég fara forgörðum þau skjöl, sem sönnunin hefði átt að byggjast á. Þegar ég var 14—15 ára, kynntist ég dönskum pilti. Hann var á seglskipi, sem flutti vörur til Duusverzlunar í Keflavík. Ég þekkti hann talsvert og við vorum góðir vinir. Svo hvarf hann mér sjónum, og ég vissi ekkert, hvað af honum hafði orðið, frétti ekkert til hans, frá því ég var 15 ára og þangað til 18. desember 1917. En það varð nú á töluvert aðra leið en fréttir koma venjulega. Það var morguninn 18. desember. Ég var í rúminu og las af kappi bók, sem mér þótti sérstaklega skemmtileg, og var sokkin niður í lesturinn. Allt í einu hvarf bókin. Ég gleymdi, hvað ég var að lesa, en fyrir framan mig sá ég standa mann, sem ég þekkti og var þessi danski piltur. Andlitið var samt mjög breytt frá því er ég þekkti hann, og ég fór þegar að hugsa um það, jafnframt því sem ég rifjaði upp, hvað mörg ár væru frá því er við hefðum sézt. Hann horfði á mig mjög alvarlega, og ég sá, að hann vildi eitthvað segja. Svo hvarf hann. Þetta var í albjörtu. Ég vissi náttúrlega ekki upp né niður í þessu, bjóst samt helzt við, að maðurinn væri ekki dáinn, heldur hefði ég séð hann eins og hann var nú. Aftur sá ég hann 28. desember, um morgun líka. Ég var þá að byrja að klæða mig, var ein, eins og í fyrra skiptið. Ég veit ekki enn, hvernig það hefur verið; ég man, að ég var að byrja að klæða mig; en svo hef ég víst dottið út af. Því næst man ég eftir, að ég lá út af og sá ljósa veru standa við rúmið. Mér fannst ég vera búin að missa allt vald á lík- amanum; eg fann að þessi vera hafði valdið, og að ég átti að sofna. En ég var hrædd og setti mig á móti; samt komst ég í eitthvert draumkennt ástand og ég heyrði glöggt að veran sagði: „Svefninn er ekki nógu djúpur“. Eftir það fór ég að sjá margvíslegar myndir, en það var allt ruglingslegt, og ég vissi sjálf, að þetta átti ég ekki að sjá, heldur eitthvað annað ákveðið. Loksins sá ég hurðina opnast og inn kom
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.