Morgunn - 01.06.1969, Qupperneq 61
MORGUNN
55
að á það, sem verið var að segja, meðan það var að koma,
enda hafði ég þá ekki jafn-glöggt auga og nú fyrir leitinni
eftir sönnunum; þess vegna lét ég fara forgörðum þau skjöl,
sem sönnunin hefði átt að byggjast á.
Þegar ég var 14—15 ára, kynntist ég dönskum pilti. Hann
var á seglskipi, sem flutti vörur til Duusverzlunar í Keflavík.
Ég þekkti hann talsvert og við vorum góðir vinir. Svo hvarf
hann mér sjónum, og ég vissi ekkert, hvað af honum hafði
orðið, frétti ekkert til hans, frá því ég var 15 ára og þangað
til 18. desember 1917. En það varð nú á töluvert aðra leið
en fréttir koma venjulega.
Það var morguninn 18. desember. Ég var í rúminu og las
af kappi bók, sem mér þótti sérstaklega skemmtileg, og var
sokkin niður í lesturinn. Allt í einu hvarf bókin. Ég gleymdi,
hvað ég var að lesa, en fyrir framan mig sá ég standa mann,
sem ég þekkti og var þessi danski piltur. Andlitið var samt
mjög breytt frá því er ég þekkti hann, og ég fór þegar að
hugsa um það, jafnframt því sem ég rifjaði upp, hvað mörg
ár væru frá því er við hefðum sézt. Hann horfði á mig mjög
alvarlega, og ég sá, að hann vildi eitthvað segja. Svo hvarf
hann. Þetta var í albjörtu. Ég vissi náttúrlega ekki upp né
niður í þessu, bjóst samt helzt við, að maðurinn væri ekki
dáinn, heldur hefði ég séð hann eins og hann var nú.
Aftur sá ég hann 28. desember, um morgun líka. Ég var
þá að byrja að klæða mig, var ein, eins og í fyrra skiptið.
Ég veit ekki enn, hvernig það hefur verið; ég man, að ég
var að byrja að klæða mig; en svo hef ég víst dottið út af.
Því næst man ég eftir, að ég lá út af og sá ljósa veru standa
við rúmið. Mér fannst ég vera búin að missa allt vald á lík-
amanum; eg fann að þessi vera hafði valdið, og að ég átti
að sofna. En ég var hrædd og setti mig á móti; samt komst
ég í eitthvert draumkennt ástand og ég heyrði glöggt að
veran sagði: „Svefninn er ekki nógu djúpur“. Eftir það fór
ég að sjá margvíslegar myndir, en það var allt ruglingslegt,
og ég vissi sjálf, að þetta átti ég ekki að sjá, heldur eitthvað
annað ákveðið. Loksins sá ég hurðina opnast og inn kom