Morgunn


Morgunn - 01.06.1969, Side 62

Morgunn - 01.06.1969, Side 62
56 MORGUNN þessi danski piltur. Hann gekk að rúminu, virtist vilja segja eitthvað, eins og fyrra skiptið. Ofurlítið var hann glaðlegri en áður. Ekkert skildi ég, hvað hann vildi segja, og hefur það ef til vill komið af því, að ég var dálítið hrædd við þetta og var alltaf að hugsa um að vakna. Loksins fannst mér ég heimta að vakna, og þá fann ég að tekið var undir herðarnar á mér og ég reist upp og hrist. Þegar ég vaknaði að fullu, sat ég uppi. Máttlaus var ég talsvert og dálítið var mér þungt í höfðinu. Nú var ég orðin ákaflega forvitin, en fann samt engin ráð til að fá neina betri vitneskju um þennan mann. Um þetta leyti var ung stúlka að nokkru leyti á heimili okkar, og vorum við mikið saman. Þá var það einu sinni í rökkri að við vorum einar saman heima hjá okkur. Mér datt í hug að reyna, hvort við gætum ekki komið borði af stað. Ég hafði einu sinni áður verið við slíka tilraun, en það hafði verið í gáska gert, og ég hafði hugsað mér að vera ekki með þeim flokki aftur. En mig langaði til að vita, hvað ég gæti sjálf, og nú datt mér í hug að hafa stúlkuna með. Við sátum dálitla stund. Þá fór borð- ið af stað; við spurðum og fengum það með töluverðum erf- iðleikum, að þarna væri danski pilturinn kominn og vildi tala við mig. Ekkert gjörðist frekar það kvöld. Við reynd- um aftur og þá datt mér í hug að reyna, hvort stúlkan gæti ekki skrifað. Það tókst, og virtist vera vit í því sem kom. Ég fór svo að spyrja þennan vin minn um hagi hans. Hann sagðist vera dáinn. Mér skildist, að hann mundi hafa dáið í ágúst árið áður; annars var hann ekki vel viss um það, sagðist hafa verið lengi meðvitundarlaus, að minnsta kosti myndi hann ekkert eftir sér, fyrr en nú nýlega. Hann sagðist hafi dáið heima mjög skyndilega. Ég spurði, úr hvaða veiki hann hefði dáið. Það sagðist hann ekki vita vel, það væri ekki víst, hvaða veiki það hefði verið. Ég spurði, hvað hann hefði gjört; hann sagðist hafa verið stýrimaður lengi, en rétt um það leyti, sem hann hefði dáið, hefði hann átt að fá skip, sagðist nýlega hafa tekið skipstjórapróf. Ég spurði,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.