Morgunn - 01.06.1969, Page 62
56
MORGUNN
þessi danski piltur. Hann gekk að rúminu, virtist vilja segja
eitthvað, eins og fyrra skiptið. Ofurlítið var hann glaðlegri
en áður. Ekkert skildi ég, hvað hann vildi segja, og hefur
það ef til vill komið af því, að ég var dálítið hrædd við þetta
og var alltaf að hugsa um að vakna. Loksins fannst mér ég
heimta að vakna, og þá fann ég að tekið var undir herðarnar
á mér og ég reist upp og hrist. Þegar ég vaknaði að fullu, sat
ég uppi. Máttlaus var ég talsvert og dálítið var mér þungt
í höfðinu.
Nú var ég orðin ákaflega forvitin, en fann samt engin ráð
til að fá neina betri vitneskju um þennan mann.
Um þetta leyti var ung stúlka að nokkru leyti á heimili
okkar, og vorum við mikið saman.
Þá var það einu sinni í rökkri að við vorum einar saman
heima hjá okkur. Mér datt í hug að reyna, hvort við gætum
ekki komið borði af stað. Ég hafði einu sinni áður verið við
slíka tilraun, en það hafði verið í gáska gert, og ég hafði
hugsað mér að vera ekki með þeim flokki aftur. En mig
langaði til að vita, hvað ég gæti sjálf, og nú datt mér í hug
að hafa stúlkuna með. Við sátum dálitla stund. Þá fór borð-
ið af stað; við spurðum og fengum það með töluverðum erf-
iðleikum, að þarna væri danski pilturinn kominn og vildi
tala við mig. Ekkert gjörðist frekar það kvöld. Við reynd-
um aftur og þá datt mér í hug að reyna, hvort stúlkan gæti
ekki skrifað. Það tókst, og virtist vera vit í því sem kom.
Ég fór svo að spyrja þennan vin minn um hagi hans. Hann
sagðist vera dáinn. Mér skildist, að hann mundi hafa dáið
í ágúst árið áður; annars var hann ekki vel viss um það,
sagðist hafa verið lengi meðvitundarlaus, að minnsta kosti
myndi hann ekkert eftir sér, fyrr en nú nýlega. Hann sagðist
hafi dáið heima mjög skyndilega. Ég spurði, úr hvaða veiki
hann hefði dáið. Það sagðist hann ekki vita vel, það væri
ekki víst, hvaða veiki það hefði verið. Ég spurði, hvað hann
hefði gjört; hann sagðist hafa verið stýrimaður lengi, en
rétt um það leyti, sem hann hefði dáið, hefði hann átt að fá
skip, sagðist nýlega hafa tekið skipstjórapróf. Ég spurði,