Morgunn - 01.06.1969, Page 63
MORGUNN
57
hvort hann hefði verið kvæntur; hann neitaði því. Við héld-
um þessum tilraunum áfram lengi frameftir vetrinum og
ævinlega kom hann, þ. e. a.s. þegar við vorum einar. En
kæmi það fyrir, að við leyfðum öðrum að vera með, kom
hann aldrei. Einu sinni talaði hann um mál, sem okkur hafði
farið á milli, þegar við þekkumst. Um það vissi enginn nema
ég; en stúlkan skrifaði um það.
Ég var nú farin að verða æði forvitin eftir að fá ein-
hverja vitneskju, en á því voru mestu örðugleikar. Sá eini,
sem ég vissi um að gæti frætt mig um piltinn, var danskur
skipstjóri, frændi hans. En ég vissi ekki heimili hans, og um
það leyti var enginn póstur fluttur milli íslands og Hafnar.
Um vorið kom ég hingað til Reykjavíkur, og af tilviljun
frétti ég þá, að þessi danski skipstjóri, sem mér þótti líkleg-
ur til að gefa mér vitneskju, væri staddur hér í Reykjavík.
Ég fór því til manns, sem ég vissi að var honum mikið kunn-
ugur, og bað hann að fara til skipstjórans og fá fréttir af
þessum frænda hans, bað hann að fá þær eins nákvæmar
og hægt væri, en nefndi ekkert, af hverju ég spyrði. Maður-
inn fór og kom með þær fréttir aftur, að pilturinn væri dá-
inn; hann hefði dáið fyrir 4 árum, verið lengi stýrimaður,
en átt að fá skip um það leyti sem hann dó; hafði þá nýlega
verið búinn að taka próf. Heima hafði hann dáið, og mjög
skyndilega hafði það að borið. Læknar höfðu ekki verið
vissir um, hvað að honum hefði gengið, þeim hafði ekki
komið saman um það, höfðu helzt haldið að það hefði verið
óðatæring. Kvæntur hafði hann verið. Það var það eina, sem
hafði verið alveg rangt hjá honum, því um það, hvenær
hann hefði dáið var aldrei fullyrt, enda finnst mér skiljan-
legt, að honum hafi getað skjátlazt þar, ef hann hefur ekk-
ert munað eftir sér fyrst eftir að hann kom yfir um.
Margar fleiri og mjög eftirtektarverðar frásagnir er að
finna í þessu erindi frúarinnar, en það er, sem áður segir,
birt í Morgni I. árg. bls. 128—163.
Sveinn Víkingur.