Morgunn


Morgunn - 01.06.1969, Side 64

Morgunn - 01.06.1969, Side 64
GúSlaug Narfadóttir: Minnisstæð atvik ☆ Mamma vissi margt fyrir. Margt fólk er gætt dulrænni skynjun, enda þótt það virð- ist hvorki hafa skyggnigáfu í venjulegum skilningi þess orðs né heldur miðilshæfileika. En það finnur á sér án þess að geta gert sér grein fyrir eða skýrt hvernig það kemur í hug- ann. Ein af þessu fólki var móðir mín, Sigriður Þórðardóttir. Frá því ég man eftir mér, kom það þráfaldlega fyrir að ég heyrði mömmu segja upp úr eins manns hljóði eitthvað á þessa leið: „Ekki kæmi mér á óvart þó hann þessi, sem hún nefndi, kæmi í dag“. Og ég man ekki eftir því, að það brygðist nokkurn tíma. Stundum varð hún skyndilega lasin, eða eins og drægi úr henni allan mátt, og sagði þá, að nú sækti einhver að sér, sem kæmi í dag. Oft hafði hún einnig orð á því, að hún mundi fá einhverjar óvæntar fréttir, og hafði stundum furðu ljóst hugboð um í hverju þær yrðu fólgnar. Og það kom varla fyrir, að það sem mamma sagði á annað borð, kæmi ekki fram. Við vor- um orðin þessu svo vön, að við litum á það sem sjálfsagðan hlut og festum því ekki hin einstöku atvik í minni, því miður. Eitt atvik þessarar tegundar er mér þó sérstaklega minn- isstætt, enda snerti það mig og mina nánustu. Þetta gerðist um miðjan maí árið 1921. Ég var þá komin nokkuð yfir tvítugt og bjó í Reykjavík með fyrri manninum mínum, Halldóri Bachmann, er var jámsmiður. Foreldrar mínir áttu þá heima í Hafnarfirði. Ég hafði ákveðið að heim- sækja þau um einhverja næstu helgi og hafa þá með mér
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.