Morgunn - 01.06.1969, Blaðsíða 72
66
MORGUNN
Árstíðirnar minna okkur einnig harla Ijóst á þennan sann-
leika. Haustið með sín fölnuðu blóm og visnu lauf, sem napr-
ir næðingar feykja sitt á hvað, eru sýnileg tákn þess hve tími
lífsins er stuttur og hverfull og fljótur að líða. En um leið er
þá einnig vert að hugsa um og minnast þess, að þessi hníg-
andi blóm og visnuðu lauf hafa á liðnum stundum sumarsins
unnið litaskrúð, fegurð og angan og notað sín augnablik,
sinn hverfula tíma til þess að vaxa og gróa, á meðan kostur
var. Hins vegar sýna vorið og sumarið okkur svart á hvítu,
hvernig þau fara að þessu, og hver fögnuður og sæla fylgir
því í allri náttúrunni að vaxa og gróa.
Okkar líf, okkar þroski, okkar gæfa er einnig undir því
komin, hvernig við notum okkar stundir, okkar tíma, og þá
ekki sízt, okkar vor og sumar og hvað okkur verður úr þessu.
Og vegna þess, að við erum vitibornir menn, frjálsari gagn-
vart umhverfinu en blómið, sem er fast á sinni rót, hugsandi
verur, sem skynjum ekki aðeins líðandi stund, heldur og að
nokkru leyti samband fortíðar, nútíðar og framtíðar, þá
skiptir það okkur óendanlega miklu meira máli, en það
skiptir jurtina í haganum og dýrið á mörkinni, hvað við ger-
um við tímann og hvað okkur verður úr þeim stundum, sem
okkur eru fengnar í hendur og trúað fyrir. Og í því sam-
bandi er einnig skylt að hafa það í huga, að nú höfum við
miklu meira frelsi og eigum miklu fleiri kosta völ til að nota
tíma okkar á fjölbreytilegan hátt, en átt höfðu feður okkar
og mæður.
Á liðnum öldum og allt fram yfir síðustu aldamót, hafa
kynslóðirnar í þessu landi orðið að nota svo að segja allan
sinn tíma til þess eins að geta dregið fram lífið og og geta
nokkurn veginn haft í sig og á. Til sjálfs lífsstritsins varð
að verja hverri stund og dugði þó oft ekki til. Nú er öldin
orðin önnur, sem betur fer. Vinnudagurinn er orðinn miklu
styttri, og störfin erfiðisminni og léttari. Lífsþægindin hafa
margfaldazt. Og þeim, sem það vilja, standa nú hlið lærdóms
og menntunar opin, sem áður voru flestum lokuð. Og nýjar
dyr fjölbreyttra skemmtana og jafnvel auðveldra ferðalaga