Morgunn - 01.06.1969, Blaðsíða 87
MORGUNN
81
Athyglisverð
bók
Nýlega er komin út bók eftir ameriskan
biskup, James A. Pike, sem vakið hefur
mikla athygli og mikið hefur verið ritað
um bæði í blöð og tímarit í ýmsum löndum.
Ég hef þegar gert ráðstafanir til þess að ná í þessa bók,
en það hefur því miður ekki tekizt ennþá. Sennilega get ég
skýrt nánar frá efni hennar í næsta hefti Morguns. Hins
vegar hef ég séð í erlendum tímaritum greinar, þar sem
rakið er aðalefni bókarinnar, en hef talið réttara að biða
þar til ég hef fengið bókina í hendur, að rekja efni hennar.
1 stuttu máli sagt, er tilefni þessarar bókar það, að þann
4. febrúar 1966 framdi sonur biskupsins, Jim að nafni, ung-
ur háskólanemi, sjálfsmorð á gistihúsi einu í New York.
Stuttu seinna tóku að gerast á heimili biskupsins harla ein-
kennileg og mjög áþreifanleg fyrirbæri, sem mörg voi’u þess
háttar, að biskupinn, sem þá var harla fjarri því að vera
spiritisti, gat ekki varizt þeirri hugsun, að þarna væri hinn
nýlátni sonur hans að verki, og að fyrirbærin yrðu naumast
skiiin né skýrð á annan veg.
Varð þetta til þess, að hann leitaði ráða hjá ýmsum nán-
um vinum sínum um það, hvort hann mundi eiga að leita á
fund einhvers miðils til þess að reyna að fá fréttir af syni
sinum, enda þótt honum væri það að ýmsu leyti þvert um
geð og hefði ekki trú á, að þar mundi nokkuð það koma
fram, sem sannfært gæti hann um framhaldslífið og sam-
band við þá, sem farnir eru af þessum heimi.
Er ekki að orðlengja það, að á fundum hjá hinum kunna
miðli frú Ena Twigg fékk hann þær sannanir, sem hann taldi
vera með öllu óyggjandi og veittu honum þær sannanir og
þá sannfæringu um að sonur hans lifði og hefði samband
við hann, að hann taldi það heilaga skyldu sína, að viður-
kenna það frjálsmannlega fyrir öllum heiminum, enda þótt
það kostaði hann missi síns háa embættis innan kirkjunnar
Eins og áður segir, hefur bók biskupsins vakið afarmikla
athygii. Að sjálfsögðu hefur hún hlotið misjafna dóma. En
enginn mun þó efast um, að þessi mikilsvirti biskup muni
6