Morgunn - 01.06.1969, Side 88
82
MORGUNN
skýra satt og rétt frá því, sem fyrir hann hefur borið. Og
margir dá einurð hans, einlægni og djörfung til þess að bera
sannleikanum vitni. Hann dregur enga dul á það, að hann
telji sig hafa fengið fullkomnar, óyggjandi og öruggar sann-
anir þess, að Jim, sonur hans, lifi eftir líkamsdauðann.
Bók biskupsins mun heita á frummálinu: On the other
Side.
Til lesenda Morguns
Timaritið Morgunn hefur nú komið út samfleytt í 49 ár og
getur því minnzt 50 ára afmælis síns á þessu ári. Hann hefur
flutt um hálfrar aldar skeið fjölda greina um sálarrannsóknir,
dulsálarfræði (parapsychology), drauma, dulræn fyrirbæri
innlend og erlend, auk margs annars efnis. Hann hefur notið
sívaxandi vinsælda og útbreiðslu. Ættu allir þeir, sem áhuga
hafa á þessum málum, að kaupa ritið og lesa það vandlega.
Sýnið kunningjum ykkar og vinum Morgun og leyfið þeim
að kynnast þvi efni, sem hann flytur. Nýir áskrifendur þurfa
ekki annað en senda pöntun og verður þeim þá sent ritið um
hæl. Utanáskriftin er:
MORGUNN
GarSastrœti 8, Beykjavík. Pósthólf 433.
Morgunn kemur út í tveim heftum á ári, alls 160 blaðsíður
lesmáis á vönduðum pappir, auk auglýsinga, og kostar aðeins
kr. 150.00 árgangurinn. Mun hann því vera eitt af allra ódýr-
ustu tímaritum landsins. Eldri árgangar fást á afgreiðslunni
með vægu verði á meðan upplag þeirra endist. En þvi miður
er fjöldi þeirra árganga þegar upp seldur og þvi ófáanlegur.