Morgunn - 01.06.1979, Side 19
AUSTRÆNN ANDl
17
Marga og misjafna dóma hefur Tagore fengið um ævina,
eins og allir þeir, sem með oss lifa. Hefur hann af sumum
verið talinn ófrumlegur, og mælt að sum verk hans bæru
keim eldri, indverskra höfunda. En um hann hefur einnig
verið sagt að ættlandi sinu, Indlandi, væri hann það sama og
Dante var Italiu, Shakespeare Englandi og Goethe Þýska-
landi, og mun það ekki orðum aukið.
Á Indlandi er talið, að hundrað þrítugasti og þriðji hver
maður sé læs og skrifandi. Ber Tagore menntunarástand þjóð-
ar sinnar mjög fyrir brjósti, og ekki siður ytri hag hennar,
sem er svo bágborinn, að segja má að hungurvofan sitji þar
við fjölda dyra almúgans árið um kring.
Ekki mun hann þó kæra sig um að endurreisn lands síns
stefni i kjölfar menningar Vesturlanda, sem honum þykir
seyrin mjög og blendin að vonum. En heitustu óskir hans eru,
að gagnlegustu og göfugustu kenningar Austur- og Vestur-
landa sameinist, ekki einungis í framtíð Indlands, heldur og
einnig í framtiðarbyggingu alls heimsins.
Vesturlandaþjóðirnar lifa enn í þeim fjötursheimi og nota
enn þau fræðslukerfi við uppeldi barnanna, sem hver hugs-
andi sál, sem frjáls vill vera í andlegum skilningi, verður
fyrr eða síðar að hafna og losa sig við. „En til þess að skafa
það allt saman af, er ævin að helmingi gengin,“ sagði sá sem
hvellast hefur hrópað réttmæt dómsorð yi'ir útlendu liugsana-
Ijötrunum, sem lagðir voru strax i fornöld á fámenna þjóð
norður við íshöf og látnir holdgróa.
Skólar Tagores stefna i þá átt að fyrirbyggja að menn eyði
helming ævinnar til að hrra það, sem er einskis nýtt og verra
en það. 1 stað þess að ala börnin upp við þröngsýnar kreddur
og kórvillur, og segja þeim að þær séu þær einu helgu reglur,
sem guð hafi sett, en allar aðrar skoðanir frá þeim illa, sem
varast beri sem víti sjálft, vill Tagore láta leggja rækt við
að göfga hugarfar þess mannsanda, sem í dýpstu eining sinni
er allsstaðar eins um allan heim - og heima. Og öll uppeldis-
mál, trúmál, siðferðis- og mannfélagsmál, verða að hvíla á
2