Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Page 26

Morgunn - 01.06.1979, Page 26
24 MORGUNN Túlsídas brosti og sagði til hennar: „Farðu heim til þín aftur, barnið mitt. Áður en mánuðurinn er liðinn, muntu hafa fundið manninn þinn.“ Konan gekk heim í glaðri von. Túlsídas kom til hennar á hverjum degi og kenndi henni að hugsa göfugar hugsanir, uns hjarta hennar fylltist háleitri ást. Áður en mánuðurinn var allur úti, komu nágrannar henn- ar til hennar og spurðu: „Kona, hefur þú fundið manninn þinn?“ Ekkjan brosti og svaraði: „Já, það hefi ég.“ Ákafir spurðu þeir: „Hvar er hann?“ „1 hjarta mínu er herra minn,“ svaraði konan.“ Að reyna að flýja frá heiminum, er engu betra en að reyna að losna við sjálfan sig. Alheimssálin og sál vor, standa hlið við hlið, og ást vor á Hfinu er heilbrigð eðlishvöt og er í raun og veru sú ósk vor að vera samtengdir hinni miklu tilveru. Hversu heimskuleg er því ekki sú hjátrú, sem hugsar sig „herra þess lága“; eða sú, sem vill loka sig út úr heiminum sem einhverju því, sem ætti að skoðast óvinur sálarinnar. „Sami lífsstraumurinn, sem rennur i gegnum æðar minar nótt og dag, streymir gegnum heim allan, dansandi eftir hljómfalli lifsins. Það er sama lifið og það, sem brýst fram i gleði upp úr dufti jarðarinnar í óteljandi fræblöðum og seinna bylgist fram i áköfum öldum laufa og blóma.“ Nei, heimurinn er ekki framar „sálarlaus" en vér. Blómin og stjörn- umar halda augum vormn föstum, sökum þess að vér erum af sömu rót og myndaðir i hinni sömu, miklu heild. Vér höfum ekki komist upp á háfjallatind þess boðskapar, sem Tagore flytur vestrænum huga, fyrr en vér höfum ihug- að hina dularfullu meðvitund hans um guð. Hversu vesalar og „dauðar“ virðast allar hugleiðslur og frumspeki hugspekinga vorra frammi fyrir hinni rólegu vissu þessa manns, sem finnur guð hvar sem bóndinn yrkir jörðina eða vegagerðarmaðurinn sprengir steina úr götunni eða ryður skógarflækjurnar. Ekkert má girða oss frá þessu algenga,

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.