Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Page 28

Morgunn - 01.06.1979, Page 28
26 MORGUNN sjálf (skrokkurinn), sem öll trúin byggist á, — eins og átti sér stað með musterið, sem Tagore segir frá: „Þjónninn tilkynnli konunginum: „Yðar hátign, Narottam hinn helgi hefur aldrei sýnt það litillæti að ganga inn í hið konunglega musteri yðar. Hann syngur um dýrð guðs undir trjánum meðfram vegin- um. Musterið er tómt. Þeir flykkjast saman kringum hann eins og hunangsflugur utan um hvítt lótusblóm, en gefa ei hunangskrukkunni gaum.“ Gramur í sinni fór konungurinn þangað sem Narottam sat i grasinu og spurði hann: „Hví yfirgefur þú musterið mitt með gullna hvolfþakinu, heilagi faðir, og situr hér úti á berri jörðinni að prédika elsku guðs?“ „Sökum þess að guð er ekki i musteri þinu,“ svaraði Na- rottam. Konungurinn lét brýrnar síga og madti: „Veist þú, að tutt- ugu milljónum gulls var eytt til þessarar völundarsmíði og siðan helgað guði með dýrum helgisiðum?“ „Já, ég veit það,“ svaraði Narottam. „Það var sama árið og bæir fólks þíns brunnu og þúsundir þegna þinna stóðu við dyr þinar og báðu árangurslaust: um hjálp. En guð sagði: „Vesalingurinn, sem eigi getur veitt bræðr- um sinum skýli, byggir hús handa mér!“ Og hann tók sér bústað með þeim hælislausu undir trján- um meðfram veginum. Þessi loftbóla þin er snauð af öllu nema heitri stærilahis- gufu.“ Þá hrópaði konungurinn i reiði sinni: „Yfirgef þú land mitt!“ Stillilega svaraði hinn helgi maður: „Já, rek mig i útlegð, þangað sem þú hefur rekið guð minn“.“ Dauðinn er Tagore aðeins atvik á hinni dásamlegu leið lífsins. Lifið hefur verið gott: sérhver ótta hoðað dagrenningu einhvers nýs, óvænts fagnaðar. Og liver vill segja að ferð vor

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.