Morgunn - 01.06.1979, Síða 30
ÆVAR R. KVARAN:
MÆLT MÁL
Þetta eru tvö útvarpserindi, sem flutt voru þann 9. og 16. janúar
sl. Þar eð þau vöktu talsverða athygli og höfundur hefur verið
heðinn um að hirta ]>au i Morgni koma þau hér.
I.
Ef dæma ætti eftir því sinnuleysi sem Islendingar sýna
mæltu máli, skyldi maður ætla að þetta tungumál væri jafn
dautt og latinan og hvergi lengur talað af lifandi fólki á jörð-
unni. Yfir 90% af öllu þvi efni sem um íslensku er skrifað
og skrafað fjallar um ritað mál. Erlendir áhugamenn um
tungumál hljóta að eiga erfitt með að trúa því að mæltu
máli tungu, sem ekki hefur breyst meira en svo, að hvert læst
mannsbarn getur lesið og skilið hinar frægu og fornu ís-
lendingasögur, sé ekki sýndur meiri sónti en svo, að það sé
yfirleitt ekki kennt í einum einasta skóla landsins. öll ís-
lenskukennsla fjalli um skrifað mál, sökum þess að yfirvöld-
um hafi lóðst að koma sér saman um samræmdan framhurð
móðurmólsins.
Þótt þeim, sem kenna íslensku í skólum okkar, ætti ekki
að verða skotaskuld úr því að leiðrétta meinlegustu villur í
framburði nemenda, þá ber hins að minnast, að hér á landi
hefur enn engin samræming framburðar átt sér stað.
Á alþingi í vor, þann 5. mai sl. var samþykkt þingsályktun
um íslenskukennslu i Ríkisútvarpinu svo hljóðandi: „Alþingi
ályktar að fela rikissljórninni að sjá svo um, að kennsla og
fræðsla i Rikisútvarpinu í öllum greinum móðurmálsins verði
elfd.“
Greinargerð flutningsmanna hefst á þessum tveim setn-
ingum: