Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Page 31

Morgunn - 01.06.1979, Page 31
MÆI/I' MÁI. 29 „Engum dylst, að íslensk tunga á í vök að verjast. Á þetta sérstaklega við um talað mál, framburð og framsögn.“ Það er ánægjulegt að fá það viðurkennt, að talað mál, framburður og framsögn komi eitthvað við íslenskukennslu. Flutningsmenn þingsályktunarinnar voru alþingismennirnir Sverrir Hermannsson, Tómas Árnason, Jónas Árnason, Gylfi Þ. Gíslason og Karvel Pálmason. X’að eru nú liðin þrettán ár síðan ég tók að vekja opinber- lega athygli á vanrækslu mælts máls í íslenskukennslu hér á landi. Þykir mér því vænt um að heyra frá þeim, sem völd hafa og ábyrgð, áhuga á breytingum í þessum efnum. Sökum skeytingarleysis yfirstjórnar menntamála á fslandi er ástandið í þessum efnum mina það, að einn kennari notar þennan framburð, annar hinn, og fer það venjulega eftir því, hvaðan menn eru ættaðir af landinu; sama máli gegnir vit- anlega um okkur leikara, presta, þingmenn, útvarpsþuli og aðra þá, sem skilyrði hafa öðrum fremur til þess að móta fagr- an framburð. Þegar lillögumenn fyrrnefndrar þingsályktunar því telja i greinargerð sinni, að við eigum i vök að verjast hvað snertir talað mál, framburð og framsögn, verða þeir að gera sér grein fyrir því, að enginn skólamaður veit hvaða stefnu hann á að taka í kennslu þessara mikilvaigu atriða, því hún er ekki til! Hvaða framburð á til dæmis að kenna? Þeir ágætu málvisindamenn, sem kennt hafa íslensku fram að þessu í útvarpi minnast aldrei einu orði á framburð móðurmálsins, eins og hann skipti engu máli. En þeim er vorkunn. í þeim efnum er engin stefna til! Enda hefur framburður þessara lærðu manna verið jafn misjafn og ólikur og annarra lands- manna. Eins og kunnugl er, taka öll tungumál breytingum og vissri þróun með tímanum. Höfum við til dæmis fengið að kynnast ýmsum dæmum þess í hinum bráðnauðsynlegu og ágætu ís- lenskuþáttum í útvarpinu, hvernig viss orð taka smátt og smátt breytingum i merkingu. Ég er þeirrar skoðunar, að þegar orð hefur öðlast nýja merkingu i munni alls venjulegs

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.