Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Side 42

Morgunn - 01.06.1979, Side 42
40 MORGUNN mannsandans tvíeggjað sverð. Má likja þessum fjölmiðlum við rafmagnið, sem bæði má nota til að færa okkur birtu og yl, en einnig til þess að pynda fólk eða jafnvel taka það af lífi. Það er þvi ekkert smámál, hvernig á slíkum tækjum er haldið. Eins og við vitum hafa þegar hafist deilur um það, hvað og með hverjum hætti eigi að birta efni í útvarpi og sjónvarpi. Þessar deilur eru mjög oft stjórnmálalegs eðlis og þess vegna erfiðar úrlausnar i þjóðfélagi, þar sem rit- og skoðanafrelsi ríkir. Þetta eru viðkvæm mál og skal engin tilraun gerð til þess hér að finna einhverja allsherjarlausn á þessum vanda. Hins vegar ættum við ekki að þurfa að deila mjög ákaft um það, að útvarp og sjónvarp veitir okkur stór- kostleg ný tækifæri til þess að auka í rikum mæli hvers konar fræðslumiðlun af öðru tagi en því, sem snertir stjórnmál. Þannig held ég að flestum komi saman um það, hve fróðlegir og nauðsynlegir þeir þættir útvarpsins eru sem fjalla um móðurmálið, svo eitthvað sé nefnt. Hins vegar eru þeir sama marki brenndir og annað, sem um íslensku fjallar, að þar er svo til eingöngu rætt um ritað mál, en lifandi framburður móðurmálsins látinn lönd og leið. Þetta er okkur vitanlega til skammar og geta skólamenn og unnendur móðurmálsins nú ekki sætt sig lengur við slíkan sofandahátt. Við verðum þegar að hefjast handa um einhvers konar samræmdan fram- burð, annars er ekki hægt að kenna framburð íslenskrar tungu neins staðar. Þeir sem hafa haft og koma til með að hafa sterkust áhrif á fagran framburð íslenskunnar eru þulir Ríkisútvarpsins. Islenska ríkisútvarpið var frá upphafi mjög lánsamt i vali þula að þessu leyti. Ekki sökum þess að nein stefna væri til í framburði móðurmálsins þá fremur en nú, en fremur af þeim ástæðum, að þeir sem völdust til þularstarfa upphaflega var fólk, sem unni móðurmáli sínu og lagði sig fram við að vanda málfar sitt og tókst það svo vel að til fyrirmyndar mátti teljast. Það var engin tilviljun, að Sigrún ögmunds- dóttir og Þorsteinn ö. Stephensen voru vinsælustu persónur á þessu landi i langa hríð. Þeir lón Múli Ámason og Pétur

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.