Morgunn - 01.06.1979, Qupperneq 43
MÆLT MÁL
41
Pétursson hafa að miklu leyti erft þessar vinsældir, enda góð-
ir þulir, en sá er galli á þeim að þeir hafa svo gjörólíka radd-
beitingu, að taki annar við af hinum verður að endurstilla
viðtækið.
En nú þarf að taka upp ákveðna stefnu i framburðarmálun-
um og þar verður Rikisútvarpið að gegna mikilvægu hlutverki.
Það þarf að samræma framburð þula útvarps og sjónvarps.
Og ekki einungis hvað snertir framburð, heldur þarf einnig
að koma hér til samræming í raddbeitingu, sem er nú talsvert
ábótavant. Kemur það fram í þvi, að raddstyrkur er svo mis-
jafn hjá hinum ýmsu þulum, að hlustandi verður stundum
að endurstilla viðtæki sitt eftir þvi hver þulurinn er. Þetta
er vitanlega algjör óþarfi.
Þá hefur það komið fyrir oftar en einu sinni, að góð erindi
hafa verið eyðilögð í flutningi höfunda sinna. Það þarf að
sjálfsögðu allt aðra hæfileika til þess að flytja erindi eða
semja það. Enda hefur sú stefna Rikisútvarpsins að láta höf-
unda oftast sjálfa flytja erindi sín oft verið dýru verði keypt.
Við höfum jafnvel heyrt menn með biluð raddbönd eyði-
leggja þannig ágæt erindi eftir sjálfa sig. Þetta verður að
taka fastari tökum. Stjórnendur útvarpsins mega ekki gleyma
þvi, að þeir bera ábyrgð á þokkalegum flutningi útvarpsefnis.
Engum manni er greiði gerður með því að leyfa honum að
eyðileggja fyrir sjálfum sér gott útvarpsefni. Það þarf því
að prófa þá, sem ekki hafa talað áður í útvarp og veita þeim
nauðsynlega aðstoð, ef þeir eru færir um það.
En vitanlega er ekki almennt hægt að búast við sæmilegum
flutningi útvarpserinda fyrr en hætt verður að kenna Islend-
ingum kolvitlausan lestur og þeir læra að lesa jafneðlilega og
þeir tala, eins og sýnt hefur verið fram á i þessu erindi.
tfr því að svo er komið, að þingmönnum okkar er farið að
blöskra niðurlæging mælts máls og flytja og fá samþykkta
um það þingsályktunartillögu, þá taldi ég mér skylt, sem
unnandi móðurmálsins að reyna að gera nokkra grein fyrir
þvi, hvað ég tel að gera þurfi til þess að hægt sé að bæta úr
þessu. En það verður ekki gert án þess að taka einhverjar