Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Page 45

Morgunn - 01.06.1979, Page 45
WERNER VON BRAIJN: VÍSINDIN OG GUÐ „Nú á tímum eru ljósir fyrir okkur fleiri af leyndardóm- um náttúrunnar en áður en hinar visindalegu rannsóknir hófust. En þetta veilir okkur alls enga áslæðu til að trúa því, að Guð geti ekki haldið stöðu sinni á okkar timum, eins og hann gerði áður en hinar vísindalegu rannsóknir hófust á sköpunarverki hans, með fjarsjám og rafeindatækjum.“ Þetta segir Werner von Braun í þessu ágripi að tilvitnun í kjarna málsins: vísindin og Guð. Von Braun er einn af heimsins fremstu geimvísindamönnum. Hann er yfiirmaður Marshall-geimrannsóknamiðstöðvarinnar i Bandaríkjunum og einn af aðalmönnunum, sem unnu að gerð Gemini-áætlun- arinnar, sem varð til þess að fyrsta maunaða geimfarið lenti á tunglinu árið 1969. „Það er ein af harmsögum okkar tíma, að visindin og trúar- brögðin hafa komizt i andstöðu hvort viS annað. Þessi tvö öfl —• vísindin og trúarbrögðin —• eru einmitt tvö sterkustu öflin, sem skapað hafa núverandi menningu. Með visindunum reyn- ir mannkynið að læra meira um leyndardóma náttúrunnar. Með trúnni reynir maðurinn að skilja skaparann. Þessi tvö „sjónarmið“ eru ekki háð hvort öðru, en fyrir mig er erfill: að skilja visindamann, sem ekki skynjar æðri raun- veruleika bak við uppruna alheimsins. Eins er það erfitt að skilja guðfræðing, sem afneitar vísindalegri þróun. Vísindi og trú eru nefnilega fjarri því að vera óháð hvort öðru og þau eru heldur ekki öfl, sem beinast hvort gegn öðru. Þvert á móti má líkja þeim við tvo bræður, sem berjast sameiginlega fyrir hetri heimi, á þann hátt, að þegar vísindin reyna að afhjúpa náttúruöflin i kringum okkur, ]iá reynir trúin að uppgötva

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.