Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Page 46

Morgunn - 01.06.1979, Page 46
44 morgunn öflin, sem í okkur búa, þannig að smám saman komumst við yfir meiri þekkingu á náttúrunni, verðum hrifnari og auð- mýkri gagnvart skipulagningunni og fullkomnuninni, sem aldrei bregzt í náttúrunni. Fremur yfirborðsleg þekking okk- ar á alheiminum og lögmálum hans hefur samt gert okkur kleift að senda fólk frá þess náttúrlega umhverfi og flytja það örugglega til baka aftur úr geimnum til okkar og jarð- arinnar okkar. Oendanlegur alheimur. Með geimferðunum erum við að byrja tilraunir til þess að opna „dyrnar“ að óendanlegum alheimi. Það sem við nú get- um séð af leyndardómum alheimsins „gegnum rifuna á þess- um dyrum“ staðfestir aðeins trú okkar á skapara hans. Mað- urinn getur með takmörkuðum skilningi sinum ekki gert sér grein fyrir alls staðar nálægum, almáttugum, alvitrum og ei- lífum GUÐI. Hver einasta tilraun til að skapa sér mynd af Guði og síðan reyna að skilja Guð, sannar ennþá betur mikil- leika Hans. Ég trúi því, að það bezta sé, að við, með trú okkar, viðurkennum Guð. Það veitir okkur hugsvölun að hugsa okkur Guð sem föður okkar a'llra og þar næst sú hugsun, að allir menn eru bræður og systur. Þessi hugsun ætti að vera mælikvarði á allar siðferðislegar hugsanir. Vísindamenn vita aðeins, að ekkert í náttúrunni verður brotið niður og eyðilagt, en verður i staðinn ummyndað og breytt í aðra tegund orku. Hin minnsta smáögn getur ekki horfið sporlaust. 1 náttúrunni þekkist ekki eyðing, aðeins breyting. ViH maður þá trúa því, að Guð hafi minna aflögu fyrir meistaraverk sitt: Manninn sjálfan. Fyrir mér er ódauð- leikinn framhald á andlegri tilveru okkar eftir dauðann. Mað- urinn hefur frá árdögum sögunnar borið í brjósti sér trú á líf eftir dauðarm. Þessi trú hefur verið grundvallaratriði í öllum frumstæðum menningar- og trúarlegum heimspekihugleiðing- um. Þýðing þessara staðreynda er víða meiri en einkaskýr- ingar heimspekinga og guðfræðinga á þvi, hverju við megum búast við, þegar við deyjum þessum heimi. Frá árdögum hef-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.