Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Side 49

Morgunn - 01.06.1979, Side 49
VÍSINDIN OG GUÐ 47 eitthvað af leyndardómum alheimsins, koma þau smám samari inn á svið, sem áður voru óþekkt eða eingöngu voru notuð á trúarlegum grundvelli. Hver ný reynsla — eðlisfræðileg eða sálræn — verður að falla inn í eitthvert mynztur, sem veitir hvort tveggja, trú og tilgang. Það er mannkynið, sem rann- sakar alheiminn, gerir tilraunir og leitar sannleikans. Það er ekki aukaatriði, það tekur vissulega þátt í þróunarferli sköp- unarinnar. Maðurinn sjálfur er einmitt æðsti árangur sköp- unarverksins. Sú staðreynd, að sifellt fleiri undur sköpunar- verksins koma í ljós, eru manninum mikils virði. Einfaldast er að líkja vísindunum og trúarbrögðunum við tvo glugga í húsi og athuga heiminn eða nágrannana gegnum þá. (Það eru fleiri gluggar á húsinu: listir, bókmenntir og saga). Það, sem við kunnum að sjá út um gluggana á þessu húsi, sem við höfum hugsað okkur, verður að falla inn í það líkan, sem við höfum gert okkur af alheiminum og stöðu okkar þar. Þegar það fellur ekki saman, verðum við að breyta takmarki okkar og reyna að auka getu okkar til þess að skilja sköpunarverkið. 1 okkar nútímaþjóðfélagi getur það litið þannig út — og marg- ir halda að svo sé — að vísindalegar framfarir geti valdið því að guðrækileg trú sé orðin úrelt og óáreiðanleg. Þeir geta ekki skilið hvers vegna við ættum að „trúa“ á eitthvað, ]iar sem vísindin segja okkur, að nú „vitum“ við svo mikið. Einfald- asta svarið við slíkum fullyrðingum er, að nú á timum eru ljósir fyrir okkur margir þeir leyndardómar, sem voru okkur huldir áður en vísindalegar rannsóknir hófust. En þetta gefur okkur enga ástæðu til að halda að Guð geti ekki haldið stöðu sinni nú á tímum eins og Hann gerði áður en vísindalegar rannsóknir á sköpunarverki Hans hófust með fjarsjám og raf- eindatækjum. Jafnvel þó að vísindin séu ekki nein trúarbrögð, gegna þau í krafti síns tilgangs, hagnýtingar sinnar og rannsókna sann- leikans vegna, guðrækilegu hlutverki. Skaparinn opinberar sig einmitt í sköpunarverki sínu og það er eins og Oharles A. Coulton segir: „Vísindin hjálpa okkur að skapa mynd af GUÐI.“ Við verðum að muna, að vísindin eru aðeins til vegna

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.