Morgunn - 01.06.1979, Page 55
niTSTJORAHABB
53
að engum sérstökum óþægindum veldur. En svo eru aðrir
sem geta orðið fyrir verulegum óþægindum af þessum sökum,
svo það getur truflað verulega eðlilegt lif. Þar er vandi á
höndum.
Það er alls staðar í heiminum mikill skortur á hæfu fólki
lil þess að leiðbeina þeim, sem verða fyrir óþægindum sök-
um sálræns namiis. Þar er um að ræða, að viðkomandi kann
ekki að hafa stjórn á hinum sálræna krafti, sem getur brotist
út svo að segja hvenær sem er og valdið miklum óþægindum
og jafnvel verulegri vanlíðan. Þvi miður hafa mjög fáir góðir
miðlar sinnt þessu bráðnauðsynlega leiðbeiningastarfi. En
það var einmitt meðal annars þess vegna að Sálarrannsókna-
félagið fékk Eileen Roberts hingað til lands, því hún hefur
lagt stund á þetta sérstaklega og hefur til þess mikla hæfileika.
Það kemur alloft fyrir að sálrænt fólk snýr sér til félags okk-
ar til þess að fá um það upplýsingar, hvernig það eigi að
bregðast við sálrænum hæfileikum sinum. Þessir liæfileikar
geta komið fram með miklum krafti og verið erfiðir viður-
eignar. Þeir eru i rauninni jafntvíeggjað sverð og rafmagnið.
Það er Jivi nauðsynlegt að kunna að bregðast við þeim á réttan
hátt. Fólk gleymir því oft, að það þarf til dæmis langa þjálfun
til þess að verða góður miðill. Hún er ekki siður nauðsynleg
þótt um meðfædda hæfileika sé að ræða. Þannig var Haf-
steinn Björnsson í fimm ár í þjálfun hjá Einari H. Kvaran og
aðstoðarmönnum hans, og minntist Hafsteinn þeirra ævinlega
með miklu bakklæti.
Þegar Eileen Roberts kom til okkar auglýstum við eftir
fólki með sálræna hæfileika, sem vildi láta kanna þá. 25 manns
gáfu sig fram og rannsakaði Eileen þessa einstaklinga. Um
helmingur þeirra var svo valinn úr til sérstakrar áframhald-
andi þjálfunar, sem þetta fólk hefur svo haldið áfram síðan.
Þetta er í fyrsta skipti sem S. R. F. 1. hefur fengið hingað
velmenntaðan miðil til þess að leggja sérstaklega stund á þetta
og þarf tæpast að undirstrika hve mikilvægt þetta er fyrir
framtíðina.