Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Page 60

Morgunn - 01.06.1979, Page 60
58 MORGUNN andans sé hugmyndin um eilíft líf. Þetta er vitanlega liverju orði sannara, en hann var ekki sá eini af mestu hugsuðum mannkynsins, sem var Jieirrar skoðunar. Og hver var niður- staðan i könnun á þessari skoðun meðal Islendinga? „Hún virðist þeim sérstaklega hugleikin,“ segir dr. Erlendur. Og hann heldur áfram: „Trú á framhald lífsins eftir líkamsdauð- ann er mjög sterk meðal okkar Islendinga. t þessari könnun voru fleiri vissir um áframhaldandi líf en nokkuð annað sem spurt var um.“ Þeim sem nokkuð hafa fylgst með hugsunar- hætti landsmanna að ráði, kemur þetta ekki á óvart, en vissu- lega gott að fá það staðfest með visindalegri rannsókn. Og hvað um skynjun manna á beim sem látnir eru? Þvi svarar höfundur þessarar könnunar á öðrum stað með þessum orð- um: ,,Af þeim atriðum sem við spurðum um var meiri vissa um að skynja mætti látna menn en nokkuð annað, að undan- teknu framhaldslífi." Við sem haldið höfum fram þeim skoðunum, að líf hljóti að vera að þessu loknu og hægt sé að skynja og hafa samband við látið fólk við ákveðin skilyrði getum því fagnað þessum athyglisverðu niðurstöðum. Þetta er bersýnilega skoðun meiri hluta þjóðarinnar, þótt kirkjan láti eins og henni komi þetta ekkert við og áhrif hennar séu i samræmi við það. Og hver er svo reynslan af huglækningum? Samkvæmt könnuninni hafa um fjórir menn af hverjum tíu einhvern tíma leitað til þess fólks, sem reynir að hjálpa sjúkum með hænum sínum og hugarkrafti eða samhandi við verur ann- ars heims. Og hver hefur svo árangurinn orðið hjá þeim sem þetta hafa reynt? Níu aj hverjum tíu töldu slíka aðstoð hafa orðið til gagns og um þriðjungur til mjög mikils gagns. I hók dr. Erlends eru birtar margar frásagnir þeirra sem fengið hafa hata með þessum hætti. Enda væri hægt að fylla margar bækur af slíkum frásögnum. Isleridingar hafa frá alda öðli iðulega leitað lækninga hjá öðrum en lærðum mönnum. Og það stafar alls ekki af neinu þekkingarleysi eða hjátrú. Það stafar af því, að þetta fólk hefur hvað eftir annað sýnt, að það getur veitt hjálp, jafnvel eftir að lærðir menn hafa gefist

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.