Morgunn - 01.06.1979, Side 65
BÆKUR
63
jimm aldir að æðslu menn rómversk-kaþólsku og grísk-ka-
þólsku kirknanna löluðust við persónulega!
Undirrót margs ills er vanþekkingin í trúarefnum eins og
mörgum öðrum.
Upplýstri þjóð, eins og Islendingum, er þvi liin mesta nauð-
syn að eiga gott yfirlitsrit um trúarbrögð mannkyns. Þetta
verk hefur Sigurhjörn Einarsson, hiskup, leyst af hendi með
mikilli prýði og er rit hans nú komið út i annarri útgáfu. 1
inngangsorðum sinum segir biskup meðal annars: „Trúar-
bragðasagan kannar og gerir grein fyrir trúarlegum hug-
myndum og háttum mannkyns. Enginn þáttur mannkyns-
sögunnar er mikilvægari, að öllu samtöldu. Efvergi verður
komist í snertingu við lindir menningar, burðarása mannfé-
lags og mótunarafl abmennrar hugsunar, án þess að kynna
sér átrúnaðinn. Og stórmennin á sviði trúarinnar hafa haft
meiri áhrif á heimssöguna en allir aðrir.“
Þetta er hverju orði sannara og sýnir betur en laust mál
nauðsyn og hagnýting þessarar bókar. Henni er a'tlað að
vera handbók háskólastúdenta í almennri trúarbragðasögu.
En hún getur einnig verið fyrirmynd um það, hvernig á að
beita fagurri islensku í fra'ðiriti, því málfar höfundar er til
mikillar fyrirmyndar. Þessi bók er áreiðanlega öllum fagnað-
arefni. Nöfn og atriðisorð í lok hennar eykur mjög hagnýtt
gildi hennar. Setberg gefur hana út með mikilli prýði.
Peter Russell:
HOLE ER HUGARRÓ.
Þýð.: Guðrún Andrésdóttir og Jón Halldór Hanness.
Utg. Isafoldarprentsmiðja hf., Rvik 1978.
Á hverjum degi minna fjölmiðlarnir okkur á það hve
heimurinn minnkar fyrir þeirra tilstilli. Á svipstundu vitum
við ÖH hvað hefur gerst i hinum fjarlægustu heimshlutum.
Valdhafar sem telja sig þurfa að leyna ofbeldi sinu og myrkra-