Morgunn - 01.06.1979, Side 67
BÆKUR
65
eru haldnir sömu hugsunarvillum og þeim sem leiða til styrj-
alda og íitaka. Kirkjan sem kennir sig við friðarhöfðingjann
mikla er nefnilega alltaf að berjast við þá, sem kunna að hafa
aðrar skoðanir. Sjálf skiptist til dæmis lútherska kirkjan í
yfir þrjú hundruð deildir, sem allar telja sig hafa einkaleyfi
á lyklum himnaríkis.
Niðurstaða mín er því sú að við verðum að vinna að gjör-
breyttum hugsunarhætti — beinlínis vitundarbyltingu.
En hvernig eigum við að fara að því? Um það fjallar þessi
merkilega bók, sem ber hið ágæta nafn Holl er hugarró.
Sökum rangs hugsunarháttar er streitan að verða einn
mesti sjúkdómur þessara tima og grefur sífellt undan líkam-
legri og andlegri heilsu okkar. Um það hafa að vísu verið
skrifaðar margar bækur og hef ég lesið ýmsar þeirra. En enga
hef ég rekist á sem tekst betur en þessari bók Peters Russells
að benda á hvernig við vanda okkar megi bregðast án þess
að það krefjist stritsamra æfinga eða þurfi að trufla nauð-
synlegt starf okkar eða líf á nokkurn hátt. Þvert á móti: hér
er bent á auðveldar leiðir til þess að auka starfsorku okkar
og lífshamingju með breytingu hugsanamynstra, sem hafa
leitt okkur i ógöngur. Aðferð sú sem bókin mælir með er
á íslensku kölluð Innhverf íhugun og er þegar tekið að kenna
hana hér á landi. Ég skal fúslega viðurkenna, að ég er enn
ekki einn þeirra, sem notið hafa þeirrar kennslu. En sá hugs-
unarháttur, sem lýsir sér i þessari bók á vandamálum manns-
ins í heimi nútimans, er með þeim hætti, að það er í fullu
samræmi við það, sem ég sjálfur hef hugsað um þau mál.
Margt af því sem í þessari bók stendur vildi ég sjálfur hafa
skrifað, svo vel geðjast mér að því.
Bókinni er skipt í þrjá kafla. 1 fyrsta hluta er fjallað um
það, hvernig innhverf íhugun losar um djúpstæða streitu með
því að veita líkamanum djúpa hvíld og hvernig það leiðir
svo til þess að líkaminn verður heilbrigðari og hugurinn skýr-
ari. 1 öðrum hluta er talað um hvernig hið tæra Sjálf, sem
liggur að baki allrar starfsemi hugans, kemur fram með aukn-
um styrkleika hugans og þetta verður svo grundvöllur hærri