Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Page 67

Morgunn - 01.06.1979, Page 67
BÆKUR 65 eru haldnir sömu hugsunarvillum og þeim sem leiða til styrj- alda og íitaka. Kirkjan sem kennir sig við friðarhöfðingjann mikla er nefnilega alltaf að berjast við þá, sem kunna að hafa aðrar skoðanir. Sjálf skiptist til dæmis lútherska kirkjan í yfir þrjú hundruð deildir, sem allar telja sig hafa einkaleyfi á lyklum himnaríkis. Niðurstaða mín er því sú að við verðum að vinna að gjör- breyttum hugsunarhætti — beinlínis vitundarbyltingu. En hvernig eigum við að fara að því? Um það fjallar þessi merkilega bók, sem ber hið ágæta nafn Holl er hugarró. Sökum rangs hugsunarháttar er streitan að verða einn mesti sjúkdómur þessara tima og grefur sífellt undan líkam- legri og andlegri heilsu okkar. Um það hafa að vísu verið skrifaðar margar bækur og hef ég lesið ýmsar þeirra. En enga hef ég rekist á sem tekst betur en þessari bók Peters Russells að benda á hvernig við vanda okkar megi bregðast án þess að það krefjist stritsamra æfinga eða þurfi að trufla nauð- synlegt starf okkar eða líf á nokkurn hátt. Þvert á móti: hér er bent á auðveldar leiðir til þess að auka starfsorku okkar og lífshamingju með breytingu hugsanamynstra, sem hafa leitt okkur i ógöngur. Aðferð sú sem bókin mælir með er á íslensku kölluð Innhverf íhugun og er þegar tekið að kenna hana hér á landi. Ég skal fúslega viðurkenna, að ég er enn ekki einn þeirra, sem notið hafa þeirrar kennslu. En sá hugs- unarháttur, sem lýsir sér i þessari bók á vandamálum manns- ins í heimi nútimans, er með þeim hætti, að það er í fullu samræmi við það, sem ég sjálfur hef hugsað um þau mál. Margt af því sem í þessari bók stendur vildi ég sjálfur hafa skrifað, svo vel geðjast mér að því. Bókinni er skipt í þrjá kafla. 1 fyrsta hluta er fjallað um það, hvernig innhverf íhugun losar um djúpstæða streitu með því að veita líkamanum djúpa hvíld og hvernig það leiðir svo til þess að líkaminn verður heilbrigðari og hugurinn skýr- ari. 1 öðrum hluta er talað um hvernig hið tæra Sjálf, sem liggur að baki allrar starfsemi hugans, kemur fram með aukn- um styrkleika hugans og þetta verður svo grundvöllur hærri

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.