Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Page 78

Morgunn - 01.06.1979, Page 78
76 MORGUNN þessa afstöðu í lífinu, þá verðum við til dæmis að segja lækn- isfræðinni algjört strið á hendur, því að fjöldi lækningalyfja drepur að sjálfsögðu milljónir örvera í mannslíkamanum, svo eitthvað sé nefnt. Ég vil í þessu sambandi einnig benda á það, að sú þjóð sem ef til vill hefur alið fleiri andleg stórmenni en nokkur önnur, Indverjar, hefur frá upphafi vega og i óra- margar aldir talið líkbrennslu hina eðlilegustu leið til þess að losna við mannlega líkami, sem sálin hefur yfirgefið. Lík- brennsla færist stöðugt í vöxt, hér á landi sem annars staðar, og tel ég það til mikilla bóta. Ekki síst þegar þess er gætt, hve oft það virðist koma fyrir enn í dag, að ekki virðist með öllu tryggt, að likaminn verði ekki notaður enn frekar. Ég hygg þvi, að flestir vilji tryggja sig gegn hinni hræðilegu kviksetningu. - Æ.R.K. Kveðja frá dr. Richard Beck í Kanada. DRAUMSÝN Þótt haustsins blær mér hrjúfa strjúki vanga og héluð falli lauf af skógartré, þótt stynji þungan brim við bera tanga, i bláma fjarskans land ég rísa sé, þar sem á vetrum blessuð blómstur anga, brosfríð það eru drauma minna vé. DRAUMUR JÓHANNS HJELM Fyrir nokkrum árum dreymdi Jóhann Hjelm athyglisverð- an draum. Hann var i starfi hjá Magnúsi í Kirkjulækjarkoti i Fljótshlíð. En Magnús og hans fólk tilheyrir Hvítasunnu- söfnuði. Faðir hans hét Guðni og var rúmlega áttræður, þeg- ar þetta gerðist. Guðni var trúaður og sérlega vandaður og góður maður. Jóhann segir svo frá:

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.