Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Page 79

Morgunn - 01.06.1979, Page 79
RADDIR LESENDA 77 „Á fimmtudagsnótt dreymir mig, að ég sé Guðna fyrir mér sem á að giska rúmlega þrítugan mann, og yfir honum skein svo mikil birta, að ég þóttist varla hafa séð annað eins i draumi. Ekki var draumurinn lengri. En ég sagði syni hans frá þessu, og lét þess getið, að mér þætti þetta feigðarboði. Hann tók því léttilega, og sagði að sér virtist hann hressilegur, og vel gæti verið að hann lifði okkur báða. En þrem dögum síð- ar var Guðni gamli látinn. Samkoma hafði verið haldin á Hvolsvelli kl. 5 siðdegis. Þegar henni var lokið bauð Ólafur kaupfélagsstjóri gestum til kaffidrykkju. Tröppur var upp að ganga og hengdi Guðni hatt sinn nokkuð hátt. En þegar hann seildist eftir honum aftur, datt hann og beið bráðan bana af því falli, svo draumurinn átti sér ekki langan aldur“. / MattheusargiÆspjalli standa þessi orð: „En er hann (þ. e. Pílatus) sat á dómarastólnum, sendi kona hans til hans og lét segja: Eig þú ekkert við þennan réttláta mann, því margt hef ég þolað hans vegna í draumi“. Vegna þessara orða og aðvörunardrauma hefur kona Pílatusar varðveist í endurminningu milljónanna fram til þessa dags. Og hún mun lifa vegna þessa aðvörunar- draums, sem hún lét segja manni sínum á mikilli örlaga- stund, enda þótt honum vœri ekki mikill gaumur gefinn. Úr bókinm Merkir draumar eftir William Oliver Stevens.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.