Morgunn - 01.06.1979, Page 80
SJÓÐUR TIL RANNSÓKNA I
DULSÁLARFRÆÐI
var stofnaður árið 1975 til að styrkja rannsóknir við Háskóla
íslands á dulrænum fyrirbærum. Rannanir þær á dulrænni
reynslu Islendinga, trúarviðhorfum og þjóðtrú, sem gerðar
voru á vegum Erlends Haraldssonar lektors, voru t. d. að
verulegu leyti kostaðar af þessum sjóð, laun aðstoðarmanna
greidd og ýmis konar kostnaður sem fylgir slikum könnunum.
Ekki hefði reynst mögulegt að framkvæma þessar kannanir
allar, ef ekki hefðu komið til gjafir sem sjóðnum hárust.
Sjóðurinn tekur með þökkum við smáum gjöfum sem stór-
um og mun þeim verða varið til að greiða kostnað af áfram-
haldandi rannsóknum. - Giróreikningur sjóðsins er númer
'606006. Má leggja inn á gíróreikninginn í öllum bönkum,
pósthúsum og sparisjóðum. Gjöfum til sjóðsins fylgir réttur
til að draga þær frá skattskyldum tekjum. Stjórn sjóðsins skipa
dr. Erlendur Haraldsson, séra Jón Auðuns og Þorsteinn Þor-
steinsson lífefnafræðingur. Reglugerð sjóðsins birtist í Stjórn-
artíðindum 7. ágúst 1975.
Frá stofnun hafa sjóðnum borist eftirfarandi framlög: N.
N. kr. 100.000, Minningarsjóður séra Sveins Vikings 244.481,
J. E. 4.400, Sálarrannsóknafélag Hafnarfjarðar 20.000, M. G.
1.000, J. K. og B. K. 10.000, Á. .1. og Á. Ó. 2.000, N. N.
400.000, Sálarrannsóknafélag Skagafjarðar 20.000, N. N.
118.000, I3. P. 10.000, S. V. 5.000 kr. - Stjórn sjóðsins þakkar
þessar rausnarlegu gjafir.