Morgunn - 01.06.1984, Blaðsíða 45
DULRÆN FYRIRBÆRI OG VÍSINDI
43
bókstöfum í hvern reitanna. Nú áttu þeir að giska á hvaða
bókstafur yrði valinn í hvern reit. Jafnframt voru þátttak-
endur spurðir um viðhorf sín til dulrænna fyrirbæra. Að
öllu þessu loknu fengum við útskrifaðar úr tölvunni raðir
100 bókstafa sem valdir voru með tilviljunaraðferð fyrir
hvern einstakan þátttakanda. 1 fyrra sinnið fékkst ekki
marktækur munur á fjölda réttra lausna hjá þeim sem
trúðu og ekki trúðu á dulræn fyrirbæri.7 > í síðari tilraun-
inni varð niðurstaðan marktæk (p = .2) og mjög marktæk
(p=.0005) fyrir nýja en að innihaldi mjög svipaða tilgátu.
Birti ég þessar niðurstöður m.a. í desemberhefti Frétta-
bréfs félags háskólakennara árið 1975.H) Viss endurtakan-
leiki hefur vissulega fundist í tili’aunum af þessu tagi þótt
gagnrýnendur þegi yfirleitt um það þunnu hljóði.
Hvað um „ganzfeld“ tilraunirnar svonefndu sem gerðar
hafa verið við Maimonides Medical Center,!,>10) við Houston
háskóla,11' við sálfræðideildháskólans i Cambridge12) og
víðar? Sama tilraunasnið hefur verið endurtekið i meginat-
riðum og endui’tekningarhlutfallið reynst vera um 50%.13)
Sjálfur hef ég ásamt próf. Martin Johnson við háskólann
i Utreckt í Hollandi unnið að röð tilrauna um árabil með
eftirfektarverðum árangri. (Þess má geta til gamans að
M.J. er einnig stjörnufræðingur að mennt og var sam-
starfsmaður próf. Lundmarks þar til hann sneri sér að
sálfræði). Tilgangur þessara tilrauna var að prófa hvort
samband reyndist miili dulskynjunar (mæld með fjarskynj-
unar- og getraunaprófum) og varnarhátta svonefndra, sem
birtast í brenglunum skynmótunarferia sem mældar eru
með skynjanaprófi sem reynst hefur vel til að velja menn
til áhættusamra starfa, svo sem orustuflugmenn. 1 fimm
i>double-blind“ tilraunum14.15>16) með 37 til 54 stúdenta í
hverri hafa tvær gefið marktækt samband milli dulskynj-
unar og varnarhátta (r=.46 og .26) en þrjár sýnt ómark-
tsekan en jákvæðan fylgnistuðul (r=.17, .02, .11). Jákvæð
fylgni þýðir að menn með veika varnarhætti ná betri