Morgunn - 01.06.1984, Síða 60
58
MORGUNN
bandi bendir Einar á staðhæfingu eins framliðins heimilda-
manns um að helvíti sé til.
Þetta, sem nefnt er því nafni, er, eftir lýsingunum,
ömurlegt svið, voðalegir staðir. Mennirnir lifa þar
óguðlegu lífi, sjálfum sér og öðrum til hinna mestu
þrauta. Sumar frásagnirnar halda því fram, að enginn
maður vakni á þessum stöðvum fyrst eftir viðskiln-
aðinn, sem svo er nefnt. En sé viljinn tiltakanlega
rangsnúinn og leggi mennirnir lag sitt við viðsjár-
verðar verur þar, þá geti svo farið, að þeir fái ekki
haldið sér á því sviði og lendi í þessum skuggaiegu
neðri byggðum.-e>
Þetta víti er að nokkru leyti frábrugðið því helvíti sem
kristnir menn sjá heist fyrir sér. Þarna er engan hreins-
unareld og engar píslir að finna og djöfullinn er þar hvergi
sjáanlegur að því er virðist. Einar leggur áherslu á að þeir
sem hafa lent á vansælusviðinu geti komist þaðan fyrir til-
verknað góðra afla. 1 erindinu „Mikilvægasta málið í heimi“
segir hann að spíritisminn hafi komist að því
/.. . / að hvenær sem mannssálin vill hverfa frá synd-
inni, vill fara að lifa í samræmi við það guðdómlega
eðli, sem hún hefir í raun og veru, þá eru máttug og
góð öfl ávallt þess albúin að lyfta henni upp. Það er
eðlilega þeim mun örðugra verk, sem hún er lengra
komin í því illa. En „það er fögnuður himnaríkis að
vera stöðugt að tæma helvíti“, segir Júlía í einu af
bréfum sínum.27>
Júlía er framliðinn heimildarmaður um lífið eftir dauð-
ann.
1 lýsingunni hér að framan á vansælusviðinu eða helvíti
er minnst á astralsviðið. Það er næsta svið fyrir ofan van-