Morgunn - 01.06.1984, Qupperneq 62
60
MOIIGUNN
Fyrir ofan Sumarlandið taka önnur svið ljósheima við.
Þau eru óendanlega mörg að Hkindum.
Oss skilst svo sem lífið þar sé enn andlegra. Lýsing-
arnar frá þeim sviðum eru litlar og ógreinilegar, enda
fullyrt, að oss verði lítið gert skiljanlegt um lífið þar;
það sé ólíkt jarðlífinu.
Einhvers staðar uppi í þeim hæðum er oss sagt að
Jesús Kristur hafi aðsetur sitt. En á „Sumarland-
inu“ verða menn hans stundum varir, fá beinlínis að
sjá hann, og jafnvel fullyrt, að hann geti stundum
birzt á neðri sviðum. Stundum eru menn í því skyni
fluttir upp á æðra svið, stundum kemur hann sjálfur
niður á ,,Sumarlandið“.32)
Þetta eru í stuttu máli hugmyndir Einars H. Kvaran um
lífið eftir dauðann.
1 útvarpserindi frá árinu 1934 víkur Einar að því hvað
honum hafi þótt mest um vert að kæmist til skila af hans
eigin hugsunum. Þar kemur greinilega fram, að spíritism-
inn og kynni Einars af sálarrannsóknum, hafa haft mikil
áhrif á alla hugsun hans.
Er við hæfi að ljúka þessari ritgerð um áhrif spíritisma
og sálarrannsókna á lífsskoðun Einars, með eftirfarandi
tilvitnun:
Síðan er ég fékk nokkura ákveðna lífsskoðun, hefir
hún legið mér í miklu rúmi. Mér hefir fundist það
skipta svo miklu máli að komast til viðurkenningar
á því, að við höfum ekki sálir, heldur erum sálir þeg-
ar í þessu lífi, og höfum jarðneskan Hkama. Það er
afar mikils vert um þessa líkama okkar. Það er mikils
vert um húsin okkar, að þau séu hiý og björt og þægi-
leg. En úr húsunum eigum við að fara, og það er
meira vert um okkur sjálfa. Það er líka meira vert