Morgunn - 01.06.1984, Qupperneq 70
68
MOKGUNN
vegg konungsins. E. t. v. eru engin rit eins þrungin af sög-
um um sálræn fyrirbrigði og Gamla testamentið, nema ef
vera skyldi guðspjöllinn og Postulasagan, að ógleymdri
Opinberunarbókinni.
f öllum trúarbrögðum kemur það fyrir, að mörkin verða
óglögg milli hins sálræna og heimspekilegra sanninda. T. d.
er tilgangur margra frásagna hins gamla sáttmála, að fela,
eða opinbera, andleg sannindi með líkingamáli og goð-
sögnum. En í öllu þessu leynast djúp, sem enginn kannar
nema dulsinninn, og spíritísk fyrirbrigði, sem enginn getur
túlkað nema sá, sem sálrænum heifileikum er búinn. Þess
vegna voru hvorir tveggja til í gyðingdómi, dulsinnar,
Hasidistarnir og sálrænir menn, Kabbalistar. Til gyðing-
dóms teljast nú 15 milljónir manna og þeir vegsama dul-
sinna og spíritista Gyðingdómsins fyrir það ljós, sem þeir
hafa verpað á veg trúarinnar.
Kristnir menn trúa þvi, að spámenn Gyðinga hafi talað
fyrir munn Guðs. í helgiritum kristinna manna er því
haldið fram um a. m. k. þrjá þeirra. Elía, Móse og Samúel,
að eftir dauðann hafi þeir komið aftur til að sýna sig
jarðneskum mönnum.Engin trúarbrögð eru eins eindregin
andatrú — spiritismi — og kristindómurinn. En kristnum
mönnum mörgum líkar ekki þetta nafn, og sumar deildir
kristninnar, eins og rómv. kaþólskir menn, trúa þvi, að
samband við framliðna sé verk djöfulsins. Kaþólska kirkj-
an fordæmir sambandstilraunir spíritista, „jafnvei þótt
samband við Satan sé útilokað og sambands sé leitað við
góða anda aðeins“.
En engu að síður rennur sálrænn straumur gegn um
allt helgisiðakerfi kristninnar. Á það er minnt, að Kristur
hafi dáið og risið upp frá dauðum. Að hann hafi birst
Maríu og postulunum. Að hann hafi stigið upp til himna
og lofað að koma aftur til jarðarinnar. Máttugasti boð-
beri kristinnar trúar um löndin var maður, sem orðið hafði
fyrir stórfelidri sáirænni reynslu fyrir hiiðum Damaskus-
borgar. Einn af máttugustu hornsteinum kristinnar kirkju