Sjómaðurinn - 01.10.1939, Qupperneq 15

Sjómaðurinn - 01.10.1939, Qupperneq 15
SJÓMAÐURINN 9 SJÓRÁN í stríðinu 1807-1814 AÐ var reglulega heitur og mildur hásumar- dagur það herrans ár 1808. Júlí var kom- inn með miklum hitum, en hingað lil hafði ver- ið dálítil gola, svo að hitinn varð ekki eins ó- þægilegur. En nú hafði gert blæjalogn, og stór, enskur kaupskipafloti, sem var á leið til Eystrasalts- hafnanna, hafði vegna lognsins orðið að varpa akkerum í Ivattegat, rélt hjá Sámsey. Skipa- flotinn var um 10 kaupskip, undir vernd nokk- ura alvopnaðra léttisnekkja. Skipunum hafði verið lagt nokkuð dreift, flest kaupskipin lágu utar og inni á milli þeirra lágu snekkjurnar. 27. maí þetta sama ár hafði víkingaforinginn Ole Andersen Steenberg verið gerður að yfir- manni hátsins „Fortuna V“, frá Kaupmanna- höfn. Eftir þessa útnefningu sína, hafði hann ekki hertekið nein skip, en nú hafði hann frétt af þessum enska skipaflota, sem var á leið aust- ur, og þegar liann var]>aði þarna akkertum. hugsaði hann sér gott til glóðarinnar. „Fortuna V“, sem aðeins var 4 tonn á stærð, hafði 1 fallbyssu og 13 manna áliöfn, varpaði akkerum alllangt frá skipaflotanum. Ásamt vini sinum, kaupmanni og skipstjóra Rasmusi Sö- rensen frá Besserby á Sámsey, sem þekti sjó- inn í kringum evna eins og bæjarlækinn lieima hjá sér, fór Ole Andersen Steenlierg í skijis- bátinn. Áður hafði mcstur hluti skipshafnar- innar falið sig undir ábreiðslum i bátnum, — ekkert grunsamlegt sást. Það var mjög hyggi- legt af Óla Andersen, að velja sér galíasinn „Bettv“ sem fórnarlamb. Það lá yzt í flóanum og það var mjög auðvelt að liertaka það. Andersen stýrði bátnum að hliðinni á galí- asnum, sem var 50 tonn að stærð, og fór bar einn um liorð. Englendinaarnir tóku ágætleaa á móti honum og hann sagði þeim að hann vildi gjarnan verzla við þá. Þá grunaði ekki neitt. Og meðan Ole Andersen var að makka og semia Við þá, skreið áhöfnin, sem falin var undir ahreiðslununum í skipnum fram. klifraði án bess að eftir væri tekið upp skipshliðina og faldi sig undir borðstokknum. Þegar merki var gefið, þustu þeir allir fram og liáru á auga<- bragði skipshöfnina, sem hæði var undrandi og óviðbúin, alveg ofurliði. Þetta gerðist alt svo fljótt. Eftir augnablik voru allir rækilega bundn- ir og læstir inni niðri í skipinu. Nú skeði all i einni svipan. Það var liöggvið á akkerisfest- ina. 10 menn fóru aftur í skipsbátinn og fóru að draga „Betty“ i áttina til lands. Ole Ander- sen, sem lengi hafði horft út að hafsbrún, tók eftir því að sjórinn gáraðist yzt við sjóndeild- arhringinn, liann var að koma á austan. í flýti skipaði hann að draga upp segl. Bátnum mið- aði liægt til lands, en nú fyrst tóku hin skip- in i flotanum eftir því, að það vaT eins og „Bettv“ væri að læðast til lands. Það var næst- um búið að draga upp öll segl á „Betty“, þeg- ar léttisnekkjurnar fóru að draga upp segl og skjóta á galíasinn, til þess að eyðileggja hann. En þar hafði verið tekið eftir hinni vaxandi austanátt og hún notuð eins og hægt var. Snekkjan, sem lá næst „Betty“ byrjaði að skjóta, en árangurinn varð ekki meiri en að kúla fór í gegnum fokkuna. Vindurinn fylti seglin og Rasmus Sörensen, sem stýrði skips- bátnum, gat af kunnugleika sínum komið „Bet- ty“ þangð, sem dýpið var svo lítið, að ensku snekkjurnar flutu ekki, og þar sem þeir höfðu vigin* á Sámsey sér til varnar. Snekkjurnar urðu að hætta við eftirförina, þær notuðu hinn hagstæða byr, stefndu í suður og töldu „Betty“ tapað skip. Þetta hernám Ole Andersens var mjög ein- lcennandi fyjrir þessa tíma og sý)udi ljóslega livers konar menn það voru, sem gerðu sér lier- nám skipa að atvinnu. Það var um að gera, að vera nógu úrræðagóður og snarráður og grípa tækifærið á réttum tíma. Og svo var eins og hamingjan brosti við þessum hugrökku víkinga- foringjum. En af „Bettv“ er það að segja, að seinna var farið með liana til Aarhus, þar sem skipið var dæmt upptækt og uppboð haldið á farminum. 10. október var uppboðið haldið. Þar voru seldir 30 kassar af svkri frá Havana, 40 föt af sykri frá St. Croix. 140 sekkir og 20 föt af kaffi frá Brasilíu, og 10 skpd. af þurkuðum saltfiski. Ágóðinn varð alls 30000 rikisdalir. Bæði yfir- menn og hásetar, sem i áhlaupinu voru, fengu sinn bróðurpart og eigendur bátsins „Fortuna V“ fengu sinna útliorgaða 1000 rikisdali fyrir hverja 100, sem þeir höfðu lagt i skipið. 1809 var „Fortuna V“ seld fyrir 365 rikisdali, en það var mikið fé fyrir svo lítinn bát. Þetta voru

x

Sjómaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.