Sjómaðurinn - 01.11.1941, Qupperneq 19
SJÓMAÐURINN
13
King varaflotaforingi á skipinu Naida fór þegar
á staðinn með deild beitiskipa og tundurspilla. Við
fyrstu sjón virtist þetta munu verða auðveldur
biti, því að aðems einn ítalskur tundurspillir var
i fylgd með skipalestinni. En nú var bábjartur
dagur, og — skyndilega heyrðist geysilegur flug-
véladynur og bimininn varð nær svartur al' flug-
vélum. Þær gerðu ógurlegar árásir á brezku her-
skipin og á Naiad eitt var varpað um 190 sprengj-
um, en það var eins og þær ættu ekki að bitta það,
og Naiad slapp með minnihátlar skemmdir. Þótti
það ganga kraftaverki næst.
öðru sinni mistókst hin þýzka innrás af sjó.
Skipaflotanum var dreift og fjölda skipa sökkt.
En það varð ekki gert án fórna, þýzku steypiflug-
vélarnar sáu um það. Um kl. 2 varð tndurspillir-
inn Greyhound fyrir sprengju og sökk. Hann bafði
allan daginn siglt fram og aftur um orustusvæðið
og sökkt földamörgum flutningaskipum. Tund-
urspillarnir Kandahar og Kingston koinu þegar að
til að bjarga félögum sinum og sama gerðu beiti-
skipin Fiji og Glouchester. Þýzku flugvélarnar
notuðu sér þetta óspart og gerðu gífurlegar árásir
á skipin, meðan þau voru við björgunina. Hver
bylgjan kom á eftir annari og steypiflugvélarnar
renndu sér yfir beitiskipin og tundurspillana, sem
voru að bjarga drukknandi sjómönnum úr haf-
inu. í fyrstu virtust flugvélarnar einbeita sér gegn
Glouchester og árangurinn sást bnált. Þegar degi
tók að halla kom þung sprengja á mitt skipið og
það sökk en skytturnar héldu áfram að skjóta þar
til sjórinn flæddi yfir þær og allir sjómennirnir
stóðu á sínum stað fram á siðustu stund.
Eftir að Glouchester var sokkið, þyngdust árás-
irnar á Fiji um allan Iielming og þannig fór, að
því var líka sökkt.
En sprengjuflugvélarnar voru ekki algerlega
einráðar í loftinu. Ógurleg skothríð var slöðugt
frá brezku skipunum og fjölda margar flugvélar
hröpuðu niður í sjóinn á eftir brezku sjómönnun-
um. Þegar sumar flugvélaeildirnar komu í annað
sinn yfir skipin, mátti sjá, að helming flugvélanna
vantaði.
Seinna um kvöldið i ljósaskiptunum lókst tund-
urspillunum Kandahar og Kingston að bjarga
miklum hluta áhafnarinnar af Fiji. Enn hefir lítið
ft'étzt um áhöfnina af Glouchester, en lalið er, að
Iiún bafi sennilega bjargazt til evjarinnar Anti-
kiterra,. — Þannig endaði önnur tilraun Þjóð-
verja til innrásar á Krít af sjó.
í dögun gerðu Þjóðverar þriðju og síðustu tilraun
sína. Yfirforingi Breta taldi möguleika á því, að
einstaka bátur eð þýzkum hermönnum kynni að
bafa tekizt að komast undan og mundu þeir lík-
lega reyna að komast á land í dögun. Fimmta tund-
urspilladeildin fékk það hlutverk að hindra þetta
og fór deildin þegar á vettvang, undir stjórn Lord
Louis Mountbatten á Iíelly. Þessi deild hafði áður
verið á þessum slóðum og haldið upp skothríð á
herstöðvar Þjóðverja á Krít.
Það kom í ljós, að aðeins tvö þýzk skip höfðu
sloppið daginn áður og reyndu nú að lenda á Ivrit,
en þeim var báðum sökkt. Það fyrra var fullt af
þýzkum hermönnum, en það seinna var fullhlaðið
af skotfærum. Fallbyssukúlur frá Kelly og Kash-
mir kveiktu brátt i þeim og hver sprengingin af
annari varð í þeim.
Allt þetta varð skammt undan ströndum Krítar
og þýzka liðið, sem komizt hafði þangað flugleiðis,
horfði þarna á margþráðan liðsstyrk sökkva nið-
ur á bafsbotn. Mun þeim liafa fundizt það sárt, i
það minnsta kölluðu þeir fljótlega á sprengjuflug-
vélar sínar.
Fyrstu flugvélarnar, sem komu um kl. 5.30 uni,
morguninn, voru háloftsflugvélar. Hundruðum
sprengja var varpað, en tundurspillunum tókst að
komast undan. Kl. 8 kom fyrsta bylgjan af steypi-
flugvélum, siðan önnur og loks þriðja. Þá lenti
þung sprengja á tundurspillinum Kashmir, braut
hann i tvennt og var bann sokkinn eftir örfáar
mínútur. Nokkru síðar kom 500 kg. sprengja á
Kelly, sem sigldi þá með 30 hnúta hraða. Ógurleg
sprenging varð í skipinu, en Junkersflugvélin
steyptist niður i sjóinn. Nokkrum augnablikum
síðar var önnur bylgjan á leiðinni vfir skipið. Lord
Louis gaf ]>egar út skipun til manna sinna: „Hvað
sem fyrir kemur, haldið áfram að skjóta!“ Þótt
skipið væri sökkvandi, fór ekki einn einasti maður
af sínum stað og logarnir og kúlnahríðin stóðu
fram úr byssunum. Um 15 sekúndum siðar steypt-
ist Kelly fram vfir sig og skrúfurnar bar við him-
in, þar sem þær gengu enn eins og ekkert hefði í
slcorizt.
Skytturnar bókstaflega sópuðust frá byssunum.
Drengur nokkur, 17 ára, var enn að hlaða byssu
sina, þótt skipið væri sökkvandi, er flóðbylgjan
sópaði honum burt. Neðan þilja var bver einasti
Frh. á bls. 15.