Sjómaðurinn - 01.11.1941, Blaðsíða 20

Sjómaðurinn - 01.11.1941, Blaðsíða 20
14 S JÓMAÐURINN Minni norskra flóttamanna 17. maí 1941. Enn er líf í æðum þínum, ítra norska þjóð. Enn var för þín frækilegust frammi á Hildar-slóð. Eins og fyr, þótt yfir dynji óstöðvandi fár, böðlum þínum blasir móti bros, en ekki tár. Aldan, sem á sundum þínum svellur þennan dag, syngur sínum sæfarendum sigurvonalag. Þó að heimahöfnurn fjærri hrekist þeirra fley, fer þar lið, sem lifir sínu lífi og hregzt þér ei. Undir glæstum friðarfána fórst þú eigin stig. Engin þjóð í öllum heimi átti sök við þig. Samt var land þitt orðið orpið óvígs fjandaliðs, fávíss múgs, er forsjá lýtur fégjarns vopnasmiðs. Þó að fjandafætur saurgi fagra landið þitt, býður sól þess börnum sínum bezta skinið sitt. Hver sú dögg> sem drýpur yfir dala þinna stig, er af himins augum fallin aðeins fyrir þig. Yfir þessum þrautadögum þínum Ijómar enn minning björt um fólksins fremstu fyrri tíðar menn. Saga þeirra hug þinn helgar hetju þeirrar dyggð, sem er fús að fórna lífi fyrir sína byggð Vaska þjóð, um heimsins hálfur hljómar skærst í dag norskrar tungu töfrum slegið tímans göngulag. Upp af þúsund ára gröfum ættargöfgi þín rís að heimta úr heljargreipum heimalöndin sín. Pétur Beinteinsson, frá Grafardal.

x

Sjómaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.