Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Qupperneq 11

Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Qupperneq 11
KIRKJUÞJÓNNINN Smásaga eftir W. Somersel Maugham W. Somerset Maugham Þetta kvöld hafði farið fram skírnar- athöfn í St. Péturskirkjunni við Neville Squere, og Albert Edward Foreman klæddist enn kirkjuþjónskufli sínum. Honum var mikil ánægja að klæðast honum, því að hann var tákn stöðu hans, og þegar hann var ekki í honum, hafði hann þá ruglandi tilfinningu að hann væri ekki fullklæddur. Hann handlék hann mjög gætilega, pressaði hann og braut saman sjálfur. Á þeim sextán ár- um, sem hann hafði verið þjónn í þess- ari kirkju hafði hann eignast samansafn af slíkum kuflum, því að honum fannst hann ekki geta fleygt þeim þegar þeir voru orðnir útslitnir og nú lágu þeir all- ir vandlega vafðir inn í brúnan pappír á skúffubotninum í klæðaskápnum í svefnherbergi hans. Kirkjuþjónninn setti málaða trélok- ið hljóðlega á skírnarfontinn; bar burtu stól-, sem hafði verið sóttur handa gamalli konu, og beið þess að sóknar- presturinn lyki störfum sínum í skrúð- húsinu, svo að hann gæti lagað þar til og farið heim. Nú sá hann prestinn ganga yfir kórgólfið, krjúpa fyrir framan alt- arið og ganga síðan niður hliðarstúkuna. Hann var enn klæddur hempunni. „Hvað er hann að slóra?“ sagði kirkju- þjónninn við sjálfan sig. „Veit hann ekki að mig langar í teið mitt.“ Sóknarpresturinn, sem var nýtekinn við starfinu, var rauðbirkinn, vasklegur maður á fimmtugsaldri, með nefið niðri í hvers manns koppi. En Albert Edward var maður umburðarlyndur. „Æ, þessi asi á öllu,“ sagði hann. „En bíðum rólegir, hann lagast með tím- anum.“ Þegar presturinn var kominn það nærri, að hann gat ávarpað kirkjuþjón- inn án þéss að hækka röddina meira en sæmdi í þessu guðshúsi, nam hann staðar. „Foreman, viljið þér koma inn í skrúðhúsið andartak. Ég þarf að tala ögn við yður.“ „Sjálfsagt, herra.“ Presturinn beið hans og þeir gengu samsíða inn kirkjugólfið. „Mjög góð athöfn, fannst yður ekki? Skrítið að barnið hætti að gráta þegar þér tókuð það.“ „Ég hef tekið eftir því, að þau gera það oft,“ sagði hann og brosti út í ann- að munnvikið. „Þegar öllu er á botn- inn hvolft hef ég mjög góða reynslu í meðferð þeirra.“ Hann var hreykinn af því að hann gat nærri því alltaf huggað kjökrandi barn, með því að halda á því. Kirkjuþjónninn vissi að hann þoldi vel hrós fyrir þenn- an hæfileika sinn. ÚTVARPSTÍÐINDI 11

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.