Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Blaðsíða 18

Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Blaðsíða 18
GEORGE GERSHWIN 1898--1937 Það væri ekki óeðlilegt, að fólk héldi að George Gershwin hefði verið undra- barn. Og með tilliti til afkasta hans og afreka á sviði tónlistarinnar, mætti ætla, að hann hefði verið orðinn herra hljóm- borðsins og dús við Beethoven og Brahms þegar á sjöunda árinu. En því fór fjarri. í þann tíð er Gershwin þeyttist eins og eldibrandur á hjólaskautum eftir götum fæðingarborgar sinnar, Brook- lin, hafði hann þá bjargföstu trú, að iðkun tónlistar væri dægrastytting fyr- ir blautgeðja mömmudrengi — og eini Wagnerinn, sem hann hafði heyrt getið um á ævi sinni, var kiðfættur baseball- leikmaður frá Pittsburgh — sem reynd- ar hét Hans Wagner. Kvöld nokkurt álpaðist hann inn í hljóðfæraverzlun og hann hlustaði á grammófónsplötu, þar sem Rubinstein lék „Melody í F.“ en ósköp þótti hon- um lítið til þess hávaða koma í saman- burði við öll öskrin og lætin á úrslitaleik í cricket eða þess háttar — en þegar hann var níu ára, varð hann þó skotinn í stelpu vegna þess hve góða söngrödd hún hafði. Vafalaust hefur það verið fyrsti vísir þess að hann ári síðar varð ánauð- ugur aðdáandi Maxie Rosensweigs og fiðlunnar hans. — Og skyndilega missti hann allan áhuga á knattleikjum og kvenfólki, og arftakar hans urðu Bach og Grieg, jafnóðum sem Rosen- sweig kynnti honum stórmeistara tón- listarinnar og ljóstaði upp fleiri leynd- ardómum hennar. Gershwin skynjaði skjótt að honum lá funi í fingrum, er hann lék á slag- hörpu í fyrsta sinn, heima hjá einum vina sinna. Og þegar hann eignaðist sjálfur slaghörpu, varð að setja ströng ákvæði um að lokunartími hennar skyldi vera kl. 11 að kvöldi, til að bjarga því, sem bjargað yrði af svefnfriði fjöl- skyldu hans. Gershwin samdi ýms smálög og skaut þeim til úrskurðar hæstaréttar síns og hollvinar í tónlistarmálum, Max- ie Rosenshweigs — sem tjáði Gershwin að hann hefði ekki snefil af sköpunar- gáfu í músik, — úrskurður, sem varla á sinn líka í rangmati og skammsýni, en á hinn bóginn varð Gershwin hvatning og driffjöður til að ná sömu listatökun- um á slaghörpunni og Rosenshweig á fiðlunni. Enginn tónlistarkennari hefur nokkru sinni haft iðnari og áhugasamari nem- enda en George Gershwin — sem var mættur stundu fyrr en kennsla skyldi hefjast, og þegar hún var hafin, kom aldrei fyrir að hann liti út á leikvöllinn 18 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.