Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Blaðsíða 38

Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Blaðsíða 38
HYAÐ A Ð Sigfús Halldórsson. ÍSLENZKT ÁSTALJÓÐ heitir nýjasta dægurlagið hans Sigfúsar Halldórssonar, og er ekki að efa að það á eftir að ná sömu vinsældum og fyrri lög þessa vinsælasta dægurlagahöfund- ar okkar. Ljóðið er eftir Vilhjálm frá Skáholti og fer það hér á eftir: Litla fagra, Ijúfa vina, lífstrú mín er bundin þér. Sjáðu hvernig sólin brosir sigurglöð við þér og mér. Allt sem ég um ævi mína unnið hefi’ í Ijóð og tón verður hismi, ef hjartað, vina, hefur gleymt að að elska Frón. I augum þínum unaðs bláu, augunum sem Ijóma bezt, sé ég landið, litla vina, landið sem ég elska mest. Litla fagra, Ijúfa vina, lífið fer að kalla’ á þig, mundu þá að þú ert landið og þá hefurðu elskað mig. FÁUM VIÐ H E Y R A ? Það hefur áður verið á það minnst, í þessu blaði, að undirbúningur dagskrár virðist allmiklum erfiðleikum bundinn og sérstök vandkvæði á að hafa hana tilbúna eitthvað fram í tímann. Og því miður er nú, þegar blaðið fer í prent- smiðiuna, lítið vitað með vissu um það, hvað við fáum að heyra á jólunum af öðru efni en tónlistinni, sem getið er ítarlega á öðrum stað hér í blaðinu. En það, sem við vitum þó, er það, að á jóla- dag eigum við von á að heyra Tómas Guðmundsson skáld lesa úr verkum sín- um og á nýársdag verður rætt við gesti í útvarpssal, og eru meðal þeirra þeir Gísli Halldórsson verkfræðingur, sem er nýkominn frá langri dvöl í Bandaríkj- unum, og Gunnar Gunnarsson skáld. Þá er í ráði að á þriðja í jólum sjái Banda- lag ísl. listamanna um dagskrána að einhverju leyti, og 30. des. verður lesið úr Hávamálum og sér Einar Ól. Sveins- son um þann þátt. Þá er og ráðgert að hafa kvöldvöku fyrir gamalt fólk, ein- hverntíma milli jóla og nýárs. Á gaml- árskvöld verður dagskráin með líku sniði og vant er, þá mun Ólafur Thors forsætisráðherra ávarpa hlustendur og Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri halda ræðu. Um hið léttara efni þessa kvölds sjá þeir Har. Á. Sigurðsson og Bjarni Böðvarsson. Þó að hér sé aðeins stiklað á stóru, skal ekki dregið í efa að margt fleira skemmtilegt verði í útvarpinu um þessa hátíð, er geri sitt til að þessi jól verði öllum landslýð gleðileg jól. 38 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.