Stundin - 01.09.1940, Blaðsíða 10

Stundin - 01.09.1940, Blaðsíða 10
10 STUNDIN Vér mun- um sigra Eftir David Lloyd George David Lloyd George. Vér búum oss undir grimmilegustu árásir, sem gerðar hafa verið á þjóð vora síðan á dögum Williams Norman. Allir landsmenn eru þakklátir fyrir hina ákveðnu stefnu, sem tekin hefur verið. Þeir vita hvað hún þýðir og efast ekki um afleiðingarnar. r Ef svo illa færi að mistök yrðu á því að hrekja óvinina frá ströndunum, þá er það öllum ljóst, hversu ógurlegar afleið- ingamar myndu verða. öll þjóðin yrði sveigð í duftið og hún myndi glata frelsi sínu. Allt það frelsi, sem þjóðin á við að búa, það frelsi, sem hún hefur öðlazt fyrir margra alda bar- áttu mun verða þurrkað út á sama hátt og dæmin sanna í Tékkóslóvakíu, Póllandi og Frakklandi. Ef hermönnum vorum hins .vegar tekst að hrekja óvinina á brott, eins og þeim tókst að reka Filippus Spánarkonung og Napóleon mikla af höndum sér, munu hinar voldugu hersveit- ir ofbeldisríkjanna verða að þola sína fyrstu hrakför. Hjátrúin um ósigranleikann, sem lamað hefur viðnámsþrótt stórþjóða sem smáþjóða, mun verða afhjúpuð, og baráttan um frelsið mun verða endurskipulögð á heilli, breiðari og sterkari grundvelli. Eg hef haft spumir af hugarástandi almennings í hinum ýmsu landshlutum og afstöðu hans gagnvart ástandi því sem nú ríkir. Eg hef talað við menn héðan og þaðan, menn af öll- um stéttum, og ég finn, að allir eru samhuga, hvaða stétt sem þeir tilheyra og hvaða lífsskilyrði sem þeir eiga við að búa. Háir sem lágir, ríkir sem fátækir eiga þeir allir hugarfar ör- yggisins. — Engin örvinglan, engin hræðsla. En á hinn bóginn engar tálmyndir af hinu alvarlega ástandi. Allir vita að horfurar eru slæmar, og við megum búast við þungbæru mótlæti, hræðilegum atburðum og miklum fómum, en að lokum munum við sigra. Og þjóðin hefur tekið hinum válegu atburðum með einstöku rólyndi og stillingu. Allir eru viðbúnir að fylgja hinum ítrustu fyrirskipunum, viðbúnir að greiða það gjald, sem upp er sett, og láta allt af hendi sem stuðlað gæti að fullkomnu viðnámi gegn yfirvofandi áfalli. j Eins og gefur a" skilja erum við mjög þakklát fyrir loforðin, sem gefin hafa verið um hjálp frá þjóðunum hinum megin hafsins. Við hugsum vongóð til þeirrar aðstoðar, er samveldis- ríkin og allt Bretaveldi hefur lofað okkur. Við treystum líka meir og meir hinni miklu hjálp Bandaríkjanna. En við vitum það, að höfuðorustuna verðum vér sjálfir að heyja og úrslitin verða háð af mönnum, sem eru fæddir Eng- lendingar og berjast fyrir heill Englands gegn ægilegum harð- stjórnarher, sem knýr öll ráð til eyðileggingar oss. Ef gerð verður tilraun til þess að koma her yfir þetta mjóa sund, sem aðskilur oss frá hinum válegu stríðsúlfum, sem traðkað hafa undir fótum sér flest hinna frjálsu landa Evrópu, þá verður úrslitaorustan um garð gengin áður en nokkur önn- ur þjðð fær veitt oss víggengi, hversu mjög sem hún þó ann- ars vildi hjálpa oss. Þetta er almennings hugsunarháttur þjóðar vorrar. Með þetta í huga er þjóðin tilbúin að taka á móti hverju sem að höndum ber hinar næstu vikur. Hið sljóva aðgerðarleysi, sem ríkjandi hefur verið síðuStu ár- in, og fram til þess tíma, er ófarirnar í Noregi og rof Maginot-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stundin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.