Stundin - 01.09.1940, Page 13
STUNDIN
13
og franskri tungu eyjaskeggja að haldast, svo enn í dag er
þjóðlífið á Seychelleyjum líkara því, sem á sér stað í franskri
nýlendu en enskri. Þeir sem komið hafa til Port Victoria á
Mahé, sem er höfuðborg eyjanna, dást að snotrum smáum hús-
um umvöfðum blómskrýddum trjám og runnum, skuggsælum
trjágöngum og langri aðalgötu, þar sem Kínverjar, Múlattar
og Indverjar reka verzlun sína, vingjamlegu og glaðlyndu
fólki, sem kann franska kurteisi, jafnt biksvartir Bantúnegrar
og olífugulir Kreolar.
Við Seychelleyjar eins og raunar allar eyjar í vestanverðu
Indlandshafi veiðist mikið af sæskjaldbökum, bæði sú tegund-
in, sem veidd er vegna skjaldarins og eins þær, sem veiddar
eru til matar. Sumar þeirra vega 200 pund og þykja gott bús-
ílag. Kunnugir segja, að skjaldbökukjöt sé þrennskonar. Sumt
minni á nautakjöt, annað á hænsnakjöt og enn annað sé lík-
ast fiski. En misjafnlega mun það ljúffengt og ekki að allra
smekk fyrst í stað eins og fleira matarkyns.
Landstjórinn á Seychelleyjum ræður einnig yfir Aldabra.
Það eru fjórar lágar kóraleyjar, sem liggja sunnar og nær
meginlandi Afríku. Feiknin öll af sæskjaldbökum koma þar á
land til að verpa og er það aðalatvinna manna þar að veiða
þær. Englendingur nokkur hefur leigt veiðiréttinn og hefur þar
nokkra negra í þjónustu sinni. En frægastar eru þó Aldabra-
eyjar fyrir hinar risavöxnu landskjaldbökur, sem eiga þar
heima. Af þeim eru fjórar tegundir á eyjunum. Þær geta orðið
800 pund á þyngd! Þær verða æfagamlar. 1 Mombasa er t. d.
skjaldbaka, sem Portúgalar fluttu þangað fyrir 400 árum. Sú
má vera búin að sjá sitt af hverju! Risaskjaldbökurnar í Gale-
pagoseyjum vestur af Suður-Ameríku, sem getið er í landa-
fræðibókum, eru nú næstum útdauðar. En á Aldabraeyjum eru
þær friðarar. Um 1930 munu þær hafa verið um 4 þús. að tölu.
EIGA SKÁLD AÐ LIFA ?
Framhald af bls. 9.
ég til þess, að nýrri grein verði skotið inn í hegningarlöggjöf-
ina hið skjótasta — og ungu skáldin látin sæta opinberu
straffi, í staðinn fyrir hinar leyndu, seigdrepandi og ómannúð-
legu refsiaðgerðir, sem nú eru í gildi. —
•ölafur Jóh. Sigurðsson.
VÉR MUNUM SIGRA -
Framhald af bls. 11.
flytja vaming eftir til og frá Kína. Það var þeirra bezta leið,
°g að lokum eini aðgangurinn að hinu víðáttumikla svæði þar
sem frelsi og sjálfstæði Kína lifir ennþá.
Þessi svívirðilegu svik við Kína, hafa auðvitað haft óhag-
stæð áhrif á almenningsálit tveggja stórþjóða, sem hafa sýnt
okkur mikla vináttu í þeim erviðleikum sem við eigum við
að búa.
Þetta er heimska og þröngsýni.
Þetta eru afleiðingamar af afturhaldssemi hinna áhrifamiklu
manna, er sæti eiga í stjóminni. Þeir eiga beinlínis sökina á
þessum frámunalega klaufaskap og heimsku.
GÖRÓTTUR DRYKKUR!
MJÖLK — í henni er bæði
kalk og fosfór, en þó er hún
85% vatn. Mjólkin innheldur
A, G og D vitamin.
o o
KÖKÖ — inniheldur hress-
ingarlyf, sem heitir theobrom-
ine, sem svipar til caffeine. 1
kókói eru sama sem engin víta-
mín, nema það sé blandað með
mjólk eða rjóma, en í því er
hinsvegar nóg af fosfór, jámi,
kopar og magnesíum.
o o
TE — allt te inniheldur
caffeine, sem er hressingarlyf.
Ef te er látið standa of lengi
vill myndast í því efni, sem
nefnist tannin og er það óholt
fyrir meltinguna.
o o
KAFFI — er eins og margir
vita mjög hressandi, en þaó er
vegna þess, að það inniheldur
mikið af caffeine. Kaffibragðið
velþekkta kemur úr olíu, sem
nefnist caffeol. 1 kaffi eru eng-
in vitamin svo teljandi sé.
o o
APPELSINUSAFI — inni-
heldur mikið C vitamin; sama
er að segja um tómatasafa.
Appelsínan er 90% vatn.
HALFRAR MINCTU
HUGLEIÐINGAR
1. Eftir hverju var New York
nefnd ?
2. Hvað heitir stytzta leikrit
Shakespeare’s ?
3. Hvað: hétu vamarvirki Hol-
lendinga?
Svör :
1. New York heitir eftir York-
héraðinu í Englandi, og til
heiðurs hertoganum af
York. New York var upp-
haflega numin af Hollend-
ingum og hét þá New Amst-
erdam.
2. Macbeth er stytzta leikrit
Shakespeare’s.
3. Landvamavirki sín nefndu
Hollendingar: Börkinni