Stundin - 01.09.1940, Side 25
STUNDIN
25
Þetta kort sýnir þær leiðir, sem Þjóðverjar velja í árásarflugferðum sínum á Bretlandseyjar
undanfarið, — og með hverjum degi, sem líður, magnast árásirnar og fjölgar leiðum loftsins.
húsbónda síns, þannig að höfuð hans og efri hluti líkamans
var á kafi í söltum sæ, en fæturnir upp úr, fastir í járngreip-
um Valda Er ekki að vita, hversu þessu hefði lyktað hefði
ekki Birgir, með feikna umbrotum og áreynslu getað hnykkt
höfðinu snöggvast upp úr sjónum. Hvessti hann feiknsjónir
á Valda og öskraði með þrumuraust: „Slepptu mér aftanverð-
um, strax!” Valdi hlýddi skjótlega, sleppti brókum Birgis eins
og hann hefði brennt sig á þeim, og smó nú hinn fríði kaup-
mannssonur niður í hin myrku djúp.
Báturinn var nú að fullu stöðvaður og sveimaði síðan um
slysstaðinn og ríkti grátur og gnistran tanna innan borðs.
En skjótlega brá þó til betra útlits, því að nú skaut Birgi
upp á stjórnborða. Var hann með sigurbros á vör og Aðal-
heiði í fanginu. Hélt hún báðum höndum um háls honum.
Laust nú upp fagnaðarópi og grétu margir fögrum fagnaðar-
tárum. Þau voru nú í skyndingu innbyrt, skötuhjúin, og siðan
,,sett á fullt stím” heimleiðis. Birgir lét sér mjög annt um Að-
alheiði og svo virtist sem hún vildi ógjarna sleppa tökum af
Það er ekkert hlægilegt til í
heiminum nema sú staðreynd
að ódauðleg sál sé í dauðlegum
líkama.
Malcolm Muggeridge.
Öruggasta leiðin til þess að
ná góðum árangri í lífinu, er
að böðlast áfram.
Esmé Wingfield Strandford.
Hin blinda undirgefni fólks í
einræðislöndunum ber ekki vott
um greinilega hlýðni heldur að-
eins sönnun þess, að enginn er
eins blindur og sá, sem ekki
vill sjá.
Roosevelt.