Stundin - 01.09.1940, Síða 31
S T U N D I N
31
"V
Smásaga í bíblíustíl og tíma eftír
írska verkfræðíngínn
Brian Vcscy^Fríkgcrald
Jael lá á bakinu og var að hugsa. Það var óvenju heitt í
veðri, stormur í aðsigi, og hún horfði letilega á þokuslæðurn-
ar, sem stigu upp af fenjunum.
Hún var óánægð. Henni geðjaðist ekki að þessum stað,
þessum Zaanaím, þar sem maður hennar, Heber, hafði slegið
tjöldum sínum. Hún hataði þessa daunillu fúalykt af fenjun-
um næstum því eins innilega og hún hataði mann sinn. Hún
velti því fyrir sér, hvers vegna hún hefði gifzt honum, — hún,
sem var dóttir fsraelsmanns. En Heber var Keníti, flökku-
maður, þjófur, þegar einskis hugrekkis var þörf, en kaupmað-
ur að öðrum kosti. Hún hataði þennan feita .hvapholda mann,
flóttaleg augu hans og fjölþreifnar krumlur. Reyndar hafði
hann ekki komið nálægt henni nú uin. langa hríð. Hann mátti
ekki sjá af þessum nýja kvenmanni, sem hann hafði komið
með úr síðustu ferðinni. En hún yrði ekki lengi í náðinni, —
tjaldbúðirnar voru fullar af leifum hans. í dag var hann aft-
ur að heiman. Hann hafði látið í veðri vaka að hann þyrfti
burt í verzlunarerindum, en Jael vissi, að hann hafði forðað
sér burt vegna styrjaldarinnar. Þessi siðasta uppreisn Israels-
manna hafði brotizt út helzt til nálægt dvalarstað hans. Jael
vonaði að annarhvor styrjaldai’aðilanna stútaði honum.
Þá væri hún frjáls að velja sér elskhuga að sínu skapi. Hún
þráði hraustan mann. Mikinn mann, mann eins og Sísera,
konunginn í Haróset.
Einu sinni hafði Sísera komið til Zaanaím og gist um nótt-
ina hjá Heber. Heber var vinur Jabins, og Jabín var yfirmað-
ur Sísera, að minnsta kosti í orði. Hún mundi hann vel. Hann
var hár og dökkhærður, og eldur brann í gráum augum hans.
Hver kona gat verið hreykin af að eiga slíkan mann að elsk-
huga.
Eins og gestrisnum manni sæmdi, hafði Hebei boðið hon-
um hana, og Sísera hafði þegið boðið. Jael hafði aldrei getað
fellt sig við þessa hirðingja gestrisni. Ekki svo að skilja að
hún hefði beinlinis á móti þvi, — ekki þegar um menn eins og
Sísera var að ræða, — en með þessu var henni gert jafn lágt
undir höfði og öðrum konum Hebers. Og það var óþolandi. Hún
var elcki til þess sköpuð að vera fylgikona sauðaþjófa. Hún
átti að skipa æðri sess en aðrar konur, — hún skyldi gera það,
verða eiginkona mikils manns, konungs eins og Sísera, eða
Baraks, þessa leiðtoga Israelsmanna. En þar var reyndar
hængur á. Debóra var búin að ná tökum á honum. Sú þóttist
Bretar kaupa
50 gamla tund-
urspilia fyrir
herskipa- og
flughafnir í ný-
lendum sínum
Hinn margumræddi samning-
ur um að Bandaríkin létu af
hendi við Breta fimmtíu tundur-
spilla, og fengju til endurgjalds
aðgang að ýmsum höfnum á
eyjum Breta i nánd við Ame-
ríku, fyrir herskip sín og flug-
Roósevelt forseti.