Stundin - 01.09.1940, Side 44
Ef þú hefur 15 merki eða
fleiri í dálk A:
Hvort sem þú ert maður eða
kona, — þá læturðu alltaf und-
an til þess að komast hjá illind-
um. Þú reynir ekki einu sinni
að koma þínum góðu eiginleik-
um og hæfni þinni á framfæri,
svo að aðrir komi auga á kosti
þína og meti þá að verðleikum.
Ef þú hælir þér ekki sjálfur
gerir enginn það.
Þú ert stundvís og hirðusam-
ur og sjálfum þér nægur, en þig
skortir trú á sjálfan þig og fyr-
irætlanir þínar, og þú færð ekki
það, sem þú átt skilið. Þér er
ekki um að tefla á tvær hættur
og lætur þér þessvegna nægja
lítið.
Vertu djarfari í ráðagerðum
og framkvæmdum. Mundu það,
að fólki fellur betur við þig en
þig grunar og því skyldirðu
ekki gefa því tækifæri til að
sýna það í verki.
Ef þú hefur 15 merki eða fleiri
í dálk B.
Þú hugsar of mikið um dag-
legt brauð, ert of stilltur og
gætinn til þess að njóta þeirra
unaðsemda, sem lífið hefur að
bjóða. En það getur vel verið.
að þú sért harðánægður með
þitt hlutskipti.
Þú ert dagfarsgóður og auð-
velt að umgangast þig. Þú tek-
ur sjaldan afstöðu með eða
móti í umræðum, ert venjulega
hlutlaus. Þú ýkir aldrei af á-
hlutlaus. Þú ýkir aldrei af á-
settu ráði. Þér geðjast vel að
fólki, en þú lætur það afskipta-
laust. Öðrum finnst þú góður
„félagi”.
Þér er það vel ljóst, að ekki
má við þvi búast að sólin skíni
á hverjum degi, sem guð gefur,
en þú kippir þér ekki upp við
það. Þú lætur þig einnig einu
gilda, þótt félagar þínir njóti
meiri hylli en þú og meira sé
eftir þeim tekið. Hver athöfn
þín er venjulega vandlega hugs-
uð. Láttu tilfinningamar ráða
einstöku sinnum, gerðu það,
sem þér dettur í hug.
15 merki eða fleiri í dálk C.
Þú ert mannblendinn. Þú ert
fjörugur og hugkvæmur, og
þessir eiginleikar laða fjöldann
að þér, en gera þig ólíkan öll-
um almenningi.
Þér fellur vel að vinna með
öðrum og þú átt auðvelt með
að fá þá til að vinna þau verk,
er þú æskir. Þú nýtur ástar og
aðdáunar vegna þess að þú get-
ur endurgoldið hvorttveggja af
sömu einlægni og það býðst
þér. Þú ert um of hreinskilinn,
stundum jafnvel ókurteis, og
ættir að minnast þess, að hátt-
prýði og siðfágun eru eiginleik-
ar, sem hver maður ætti að
temja sér.
Þú ert flugnæmur. Venjulega
hefur þú óbilandi traust á sjálf
um þér, en þú eyðir alltof mikl-
um tíma til umhugsunar um út-
lit þitt og þeirra, sem þú þekk-
ir. Það er yndi þitt og ástríða
að vekja eftirtekt allra í sam-
kvæmi.
Þú ert duglegur, metnaðar-
gjarn og fær um flest, en þig
skortir ástundun og betri sjálf-
stjórn. Temdu þér þessa eigin-
leika og þá muntu ná því marki
sem þú stefnir að, hversu fjar-
lægt, sem það er.
Hér um bil 10 merki í hverjum
dálki, eða minna en 15 merki i
hverjum dálknum A, B og C.
Mér kæmi það ekki á óvart
að þú tryðir ennþá á æfintýri
og álfasögur. Þú ert litli dreng-
urinn eða stúlkan, sem aldrei
kemst á fullorðins aldur. Þú
ert mesti hringlandi, en kemur
þó ýmsu í framkvæmd, þótt
undarlegt sé.
Mörgum reynist vandratað
meðalhófið, en þér öðrum frem-
ur. Þú ert fljótur að taka af-
stöðu í hverju máli, en athugar
þá aldrei málavexti, og ert jafn-
fljótur að skipta um skoðun.
Þú ert sjálfum þér ósam-
kvæmur, en skemmtilegur við-
kynningar. Þú átt oft í stríði
við sjálfan þig um einkamál
þín, en forðast að láta aðra
vera þess áskynja.
Þú ert alltaf dálítið hræddur
um að þér verði einhver skyss-
an á, en yfirleitt finnst þér lít-
ið ævintýralegt og heillandi. Þú
hefur gaman af að láta þig
dreyma um miklar fyrirætlanir
og framkvæmdir, en draumarn-
ir verða sjaldnast veruleiki.
Hversvegna hættirðu eklci
þessu hringli ? Reyndu að
skapa þér sjálfstæða skoðun og
haltu fast við hana, hvað sem
hver tautar. Vinum þínum mun
koma betur að vera vissir um
afstöðu þína í hverju máli,
Vísindin hafa komist að þeirri
niðurstöðu, að hinir svonefndu
þrumufleygar séu ekki til, en
til sé aftur á móti einkennilegt
fyrirbrigði sem kallast mætti
ljósknettir: lýsandi kúlulaga
hlutur, sem lýður til jarðar, eða
svífur yfir jörðinni, með tiltölu-
lega litlum hraða, þegar þrum-
ur og eldingar ganga, og
spryngur loksins án þess að
menn viti til að það hafi komið
I að tjóni.
***
Amerískur prófessor hefur
reiknað út, að illgresi kosti
Bandaríkin 600.000.000 dollara
á ári. 1 Stóra-Bretlandi hefur á
síðari árum horft til vandræða
vegna útbreiðslu svokallaðs
„ragwort”, jurtasjúkdóms, sem
kostar stjórnarvöld Nýja Sjá-
lands 75.000 sterlingspund á
ári. Af öllu illgresi er þistillinn
ef til vill algengastur og svo að
segja, hvar sem er í heiminum.
En hinar hraðfleygu samgöng-
ur landa á milli auðvelda sæði
allskonar sníkjuplantna að
dreyfast víðsvegar um löndin,
og nú á dögum eiga mjög marg-
ar þjóðir í vök að verjast vegna
illgresis, sem flutzt hefur frá
öðrum heimsálfum.