Stundin - 01.10.1940, Side 45

Stundin - 01.10.1940, Side 45
STUNDIN 45 að legubekkurinn var volg- ur, svo að ég skammaði hann aftur”. “Hann hefur látið sér segjast við þaö?” “Ekki aldeilis”, svaraði Brown. “Næst þegar ég kom, þá stóö harin við legubekk- inn og var að blása á hann til að kæla hann”. Endurfuiidir. Hermaður frá Búlgaríu hittir frænku sína í Dobruja. Þau höfðu ekki sézt í 17 ár, en nú létu Rúmenar Dobruja héraðið af hendi við Búlgara um sama leyti og Rússar tóku Bessara- kíu. ' Dobruja er meirihluti í- húanna af búlgörskum ættum. ist. Þaö er enginn eiginmaður á hælunum á þeim svona níu til tíu mánuði á ári”. Skjpið blés 1 þriðja sinn, áður en veslings vélstjór- inn gat komið orðum að því, sem hann ætlaöi að segja, og þær flýttu sér aö kveðja og hröðuðu sér í land. Vél- síminn hringdi og Curlew þokaðist frá hafnargarðin- um og stefndi út úr kvínni. Konurnar horfðu á eftir skipinu, unz það beygði fyr- ir nes og hvarf sýnum. Frú Gannett gekk hægt heim- leiðis. Henni fannst óljóst sem hún hefði misst eitt- hvað, en vinkona hennar fullyrti að þetta stafaði bara af því, að hún hefði misst af kaffinu. Nú komu daprir og tilbreytingalausir dagar fyrir frú Gannett, en það var helzt tunglskin í tómlætinu að frú Cluffins leit einstaka sinnum inn. /Það var lítil skemmtun aö páfagauknum, því að hann var enn svo orðljótur, aö frú Gannett varö aö geyma hann í gesta- stofunni og hafa dúk yfir búrinu mestallan daginn. Aumingja páfagaukurinn var að velta því fyrir sér, hvort daginn mundi ekki fara að lengja bráðum. Frú Cluffins stakk upp á því að selja fuglinn, en vinkona hennar hafnaði afdráttarlaust öllum slíkum uppástung- um, jafnvel boði veitingamannsins á horninu, sem hafði komizt á snoöir um orðbragð páfagauksins og vildi endilega kaupa hann. “Þaö veröur gaman aö heyra, hvaö þessi blessaöur fugl segir manninum þínum”, sagöi frú Cluffins einu sinni, þegar þær sátu saman, þrem mánuðum eftir brottför Curlew. “Hann hefur vonandi gleymt þeirri vitleysunni”, sagöi frú Gennett og roönaði upp í hársrætur. “Hann minnist aldrei á það, þegar hann skrifar mér”. ' “Seldu páfagaukinn”, sagði frú Cluffins, einbeitt á svip. “Þú hefur hvorki gagn né gaman af honum, og Hobson gamli borgar vel fyrir hann”. Frú Gannett hristi höfuðið. “Maðurinn minn yrði æf- ur, ef ég geröi baö”, sagði hún. “O. sussu. nei”, sagði frú Cluffins. “Gerðu nú eins og ég segi þér, og sjáðu til hvernig fer. Eg sagði Cluffins aö láta Hobson gamla vita, aö hann gæti fengið fuglinn fyrir fimm pund”. “Nei, það get ég ekki gert”, sagði vinkona hennar dauðhrædd. “Láttu mig um þaö”, sagði frú Cluffins kotroskin. “Allt í lagi, góöa mín”. Hún lagði hendina á öxl vinkonu sinnar, leiddi hana

x

Stundin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.