Stundin - 01.10.1940, Blaðsíða 46

Stundin - 01.10.1940, Blaðsíða 46
46 STUNDIN út að glugganum og talaði alvarlega við hana. Eftir fimm mínútur höfðu tvær grímur runnið á frú Gann- ett, eftir tíu mínútur var hún búin að láta undan og eftir fimmtán mínútur var frú Cluffins komin af stað með páfagaukinn og vingsaði búrinu svo ákaft, að páfa- gaukurinn varð að halda sér dauðahaldi með kjafti og klóm til þess að detta ekki af prikinu. Frú Gannett horfði út um gluggann og settist síðan niður skrítin á svip. Hún var aö velta því fyrir sér, hvernig bezt væri að haga sókn og vörn í málinu, þegar maður hennar færi að spyrja eftir páfagauknum. Viku síðar nam bifreið staðar við húsið. Vélstjórinn kom út úr bifreiðinni, hentizt upp stigann, fleygði frá sér heilum hestburði af bögglum og faömaði konu sína að sér, svo að hún gat varla náð andanum. “Gott aö vera kominn aftur heim”, sagði Gannett, lét fallast niður á hægindastól og setti konuna á kné sér, “Hvernig hefur þér liðið, góða mín? Hefurðu verið ósköp einmana?” “Eg vandist því”. sagði frú Gannett hæglátlega. Vélstjórinn ræskti sig. “Þú haföir páfagaukinn”, sagði hann. “Já, ég hafði töfragaukinn”, sagði frú Gannett. “Hvernig líður honum?” sagði maður hennar og skim- aði í kringum sig. “Hvar er hann?” “Sumt af honum er þarna á arinhillunni”, sagöi frú Gannett og reyndi að láta sem ekkert væri. “Sumt af honum er í hattöskjunni minni uppi, sumt í vasa mín- um og hérna er afgangurinn”. Hún seildist niður í vasa sinn og dró upp tvíblaða sjálfskeiðing. “Á arinhillunni!” endurtók vélstjórinn og glápti á sjálfskeiðinginn. “í hattöskjunni!” “Bláu kerin þarna”, sagði kona hans. Gannett studdi hendi undir kinn. Ef honum hafði heyrst rétt. þá hafði einn páfagaukur breytzt í tvö skrautker, hatt og hníf. Þetta var sannarlegur töfra- gaukur. “Ég seldi hann”, sagði frú Gannett allt í einu. Vélstjóranum brá óþægilega. Hann hafði lagt hand- legginn ástúðlega um mitti konu sinnar, en sleppti nú tökunum. Hún reis á fætur og settist á stól á móti honum. “Seldirðu hann?” sagði Gannett hásum rómi. “Seld- irðu páfagaukixm?” STEINN STEINARR: Briíflkaups- husefli (í fornum stíl) Syng nú mín sálarlúta sætligan brúðkaupsóð, hart meðan heimsins rúta hringveltist sína slóð. Upp lyftist önd og húfa, ólund má sérhver skúfa útrekist agg og hnjóð. Svo sem hver sitra og i spræna í sjóinn hleypur ör, skal og til makans mæna mannkindin ein og hvör. Maður skal manni gagnast, margliga þar af hagnast, svo spáði spaks manns vör. Vor stendur mitt á meðal mjög uppábúin snót, beinvaxin, björt og eðal- borin með nettan fót. Hýr meður hönd óslaka, hafandi ektamaka láð af norðlenzkri rót. Vel mennt og vel hafandi víst er sú dándisfrú, allt sitt í eðlistandi eigandi, veit mín trú, innstæður eldi varðar, item sjetta part jarðar. Mörg lagði minna í bú.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stundin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.